Nýtt austurrískt leikrit byggt á 10 ráðum eftir Hallgrím 25. maí 2011 19:00 Hallgrímur Helgason og Peter Arp á meðan á heimsókn hins síðarnefnda stóð um síðustu helgi. Fréttablaðið/Valli
Leikrit byggt á síðustu bók Hallgríms Helgasonar, 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp, verður frumsýnt í Salzburg í Austurríki í haust. Sjaldgæft er að leikrit byggð á bókum íslenskra höfunda séu sett á fjalirnar erlendis. „Í mars í fyrra var Hallgrímur að lesa upp úr bókinni í Salzburg. Mér var boðið þangað til að lesa upp þýsku þýðinguna og þá heillaðist ég af tveimur köflum í bókinni," segir Austurríkismaðurinn Peter Arp sem annast leikgerðina. „Annar kaflinn var mjög fyndinn og fjallaði um þegar aðalpersónan Toxic er í sjónvarpsstúdíói og hinn fjallaði um þegar hann drepur föður sinn fyrir slysni. Ég heillaðist mjög af þessum köflum og samtölin fannst mér virkilega skýr og vel skrifuð. Ég talaði við Hallgrím og sagði að bókin nánast kallaði á að það yrði gert dramatískt leikrit úr henni." Hallgrímur tók vel í bón Arps og eftir að hafa fengið leyfi frá útgefanda Hallgríms hófst Arp handa við undirbúninginn. Aðspurður segir hann að vel hafi gengið að laga bókina að leiksviðinu. „Ef þú ætlar að gera leikrit upp úr bók þarftu að finna út hver kjarni bókarinnar er og það er þessi aðalpersóna Toxic, sem er afar þjáð sál." Hann bætir við að leikritið verði draumkennt og byggi á því hvernig Toxic líti um öxl á viðburðaríkt lífshlaup sitt. Arp var staddur hér á landi um síðustu helgi til að kynna sér sögusvið bókarinnar. Hann festi íslenska náttúru á filmu, þar á meðal hraunið fyrir utan Hafnarfjörð, og ætlar að hafa hana sem bakgrunn í leikritinu. Það verður síðan frumsýnt í Schauspielhaus-leikhúsinu 3. nóvember og eru um tólf sýningar fyrirhugaðar. Schauspielhaus er svokallað frjálst leikhús sem þarf að sækja um styrki á hverju ári til að halda starfseminni gangandi. Það er eitt stærsta frjálsa leikhús Austurríkis og sömuleiðis ef Þýskaland og Sviss eru tekin með í reikninginn. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Lífið Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir Lífið Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Lífið Ástardúett Stuðmanna í nýjum búning Tónlist „Fallegur fjölskyldusamruni“ Lífið 90% þeirra sem upplifa hárlos meðhöndla það ekki - það er þó hægt Lífið samstarf Öðruvísi líf: „Veistu Hrund, þú ert eiginlega eins og Forrest Gump“ Áskorun Trúlofuðu sig á sama stað og þau byrjuðu saman Tónlist Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Lífið 50+: Þegar börnin búa enn heima hátt í þrítugt Áskorun Fleiri fréttir Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Færa Vestur-Íslendingum rausnarlega afmælisgjöf Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Aðstandendur Secret Solstice standa að nýrri hátíð sem hefst með almyrkvanum Einlæg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ „Þetta var eins og draumur sem ætlaði aldrei að taka enda“ Sjá meira