Telur að danska þjóðin eigi eftir að elska Frímann 14. febrúar 2011 09:15 Fyrirtæki Klovn-bróðurins Caspers Christensen framleiddi á fimmtudaginn prufu af spjallþætti þar sem Frímann Gunnarsson var spyrill. „
Prufuþátturinn tókst frábærlega og það voru 300 áhorfendur í salnum," segir danski leikarinn Casper Christensen, annar helmingur Klovn-tvíeykisins, í samtali við Fréttablaðið. Fréttablaðið greindi á dögunum frá útrás Frímanns Gunnarssonar, persónu bræðranna Gunnars og Ragnars Hanssona. Á fimmtudagskvöld fóru fram upptökur á sérstakri prufu af dönskum spjallþætti sem Gunnar Hansson stýrir í hlutverki Frímanns Gunnarssonar. Þátturinn hefur hlotið vinnuheitið Copenhagen Nights og fer fram á ensku. Hugmyndin er að Frímann fái til sín danskt frægðarfólk og er þar kóngafjölskyldan efst á óskalistanum, fari þátturinn í framleiðslu. „Ég held að áhorfendurnir hafi kunnað vel að meta Frímann," segir Casper spurður út í viðbrögð dönsku áhorfendanna við íslenska sérvitringnum. Gestir Frímanns í prufuþættinum voru Casper sjálfur, grínistin Lasse Rimmer og fatafellan Kira Eggers. Smá stund tók fyrir áhorfendurna að kynnast persónu Frímanns, en þegar þeir höfðu gert það og dönsku gestirnir mættu á svæðið var mikið hlegið. Casper Christensen er einn af eigendum framleiðslufyrirtækisins Douglas Entertainment. Fyrirtækið hyggst vinna að því að koma þætti Frímanns í danskt sjónvarp, en en hvernig metur hann möguleikann á því að það takist? „Ég er bjartsýnn enda svínvirkaði þátturinn!" Hvenær komumst við að því hvort þátturinn fari á dagskrá í danmörku? „Ég hef ekki hugmynd." En hvernig heldurðu að danska þjóðin taki Frímanni? „Þau munu elska hann." atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Sjá meira