Frá lögum unga fólksins yfir í lög fyrir eldri borgara 12. febrúar 2011 18:00 700 þættir í höfn. Gerður G. Bjarklind ásamt samstarfsfólki sínu í Ríkisútvarpinu. Frá vinstri: Hrafnhildur Halldórsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Una Margrét Jónsdóttir, Gerður G. Bjarklind, Sigrún Stefánsdóttir dagskrárstjóri, Ævar Kjartansson og Viðar Eggertsson. fréttablaðið/gva
Gerður G. Bjarklind, útvarpskona á Rás 1, stjórnaði óskalagaþættinum Óskastundin í 700. sinn í gærmorgun. Af því tilefni var haldið hóf henni til heiðurs og hún leyst út með blómum og púrtvíni af samstarfsfólki sínu í Ríkisútvarpinu. „Á einhverju allt öðru átti ég von en þessu,“ segir Gerður. „En þetta er líkt þeim því þau eru svo sæt í sér og elskuleg, allir samstarfsmenn mínir. Ég er ekki hissa að því leyti og þetta var bara ógurlega gaman.“ Gerður hefur stjórnað Óskastundinni frá árinu 1997. Hún var einnig þulur en hætti því um áramótin 2004/2005 og á árum áður var hún einn af stjórnendum Laga unga fólksins. „Það er dálítið fyndið að byrja með Lög unga fólksins og enda með lög handa eldri borgurunum. Þá setur að mér sú spurning hvort þetta er ekki bara sama fólkið sem ég er að leika lögin fyrir,“ segir hún létt. Í nóvember næstkomandi verða liðin fimmtíu ár síðan Gerður hóf störf hjá Ríkisútvarpinu. „Sumir segja við mig: „Vinnurðu enn þá hjá sömu stofnun?“. Einhvern veginn hugsar maður aldrei neitt út í þetta. Maður er þarna vegna þess að það er látið vel að manni og manni þykir gaman að vinna þarna.“ Hún verður 69 ára í september og ætlar að vera eins lengi með Óskastundina og hún hefur geð og heilsu til. „Þegar þetta er enn þá til staðar og mér líkar vel þá verð ég með þáttinn. Ég vona að ég tapi ekki glórunni og geti verið fólki til ánægju, það er aðalatriðið.“ freyr@frettabladid.is með óla palla Gerður G. Bjarklind ásamt kollega sínum Ólafi Páli Gunnarsssyni sem segist hafa lært heilmikið af Gerði í gegnum árin.
Mest lesið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stór brjóst eru stór Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Fleiri fréttir „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Sjá meira