Gunnar stóð við stóru orðin 8. júní 2011 08:00 Gunnar Hansson vann golfmót listamanna sem fram fór á Bakkakotsvelli í Mosfellsdal. Fréttablaðið/Anton „
Þetta er eitthvað sem þjóðin verður að vita. Ég stóð við stóru orðin," segir Gunnar Hansson leikari. Eins og Fréttablaðið greindi frá blésu listamenn til golfmóts á Bakkakotsvelli í Mosfellsdal 2. júní. Gunnar Hansson lýsti því þar yfir að hann hygðist vinna mótið, hann hefði verið svo skelfilega lélegur á þessu sama móti í fyrra. Og viti menn, Gunnar stóð uppi sem sigurvegari. Hann hafnaði í 1.-2. sæti með forgjöf en vann mótið án forgjafar, lék hringinn á 73 höggum og fékk meðal annars sex fugla. Arnar Jónsson leikari, annar liðtækur kylfingur, hafnaði í 10. sæti, lék hringinn á 85 höggum en í þriðja sæti varð blúskóngurinn Halldór Bragason. Hann lék Bakkakotsvöll á 79 höggum. Gunnar Björn Guðmundsson, Skaupsleikstjórinn góðkunni, átti sæmilegan dag í Mosfellsdalnum og hafnaði í átjánda sæti en hann lék hringinn á 92 höggum. Spaugstofufélagarnir fyrrverandi, Sigurður Sigurjónsson og Randver Þorláksson, áttu hins vegar ekki góðan dag á golfmótinu því Randver lék á 102 höggum og Sigurður kom inn á 109 höggum. Kjartan Guðjónsson leikari varð síðan þriðji neðsti en hann lék hringinn á 118 höggum. Kjartani til málsbóta má nefna að hann var skráður með 36 í forgjöf.- fgg
Mest lesið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið Fleiri fréttir Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Sjá meira