Orðrómur er um að raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian og kærasti hennar Scott Disick séu búin að trúlofa sig. Hermt er að hann hafi beðið hennar þegar lokaþátturinn í Kourtney & Kim Take New York var tekinn upp á dögunum.
Í þættinum er fjallað um líf systranna Kim og Kourtney en Khloé yngsta systirin og Scott koma einnig fyrir í þættinum.
Nú er bara að bíða og sjá hvort að rétt reynist, þegar lokaþátturinn verður sýndur á næstu vikum á stöðinni E!.
