Júlli Kemp gerir breska spennumynd 14. janúar 2011 09:00 Júlíus Kemp hefur verið ráðinn til að leikstýra breska sálfræðitryllinum Bait. Hann er þó pollrólegur yfir eigin útrás.
Júlíus Kemp hefur verið ráðinn leikstjóri breska sálfræðitryllisins Bait. Hann hefur lesið handritið og líst ágætlega á, segir myndina vera í svipuðum anda og Sleepy Hollow eftir Tim Burton, bara aðeins nútímalegri. „Þetta kom upp á svipuðum tíma og við vorum að klára Reykjavik Whale Watching Massacre fyrir einu og hálfu ári,“ segir Júlíus, sem tekur þessu öllu með stökustu ró og er lítið að æsa sig yfir hugsanlegri útrás sinni. „Maður er ekkert að gera neitt stórmál úr þessu. Þeir eru núna að setja saman leikarahóp og velja tökustaði.“ Fyrirtækið sem Júlíus er í sambandi við heitir NyAC og var stofnað af Phil nokkrum Parker. Hann hafði getið sér gott orð fyrir þróun kvikmynda á borð við Wallace & Gromit en ákváð að stofna sitt eigið framleiðslufyrirtæki. Fyrsta mynd fyrirtækisins verður eftir stuttmyndaleikstjórann Michael Baig-Clifford en hann hefur tvívegis verið tilnefndur til bresku Bafta-verðlaunanna fyrir stuttmyndir sínar. Samkvæmt kvikmyndavefsíðunni imdb.com er Karl Júlíusson, leikmyndahönnuður Íslands númer eitt, skráður á myndina en Júlíus efast um að hann hafi einu sinni lesið handritið. Eins og Fréttablaðið greindi frá mun Karl hanna leikmyndina fyrir stórmynd Kathryn Bigelow sem Tom Hanks leikur aðalhlutverkið í. Júlíus segist raunar ekkert vita meira um málið, hann bíði bara eftir kallinu og þegar það komi sé hann klár í bátana. - fgg
Mest lesið Stór brjóst eru stór Lífið Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Lífið Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Lífið Fengu Dern í stað Bonham Carter Lífið Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Lífið Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Lífið Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Sjá meira