Lífið

Gaurinn neitar að flytja út

Jordan Bratman og Max/Christina Aguilera og Matt Rutler. MYNDIR/Cover Media
Jordan Bratman og Max/Christina Aguilera og Matt Rutler. MYNDIR/Cover Media

Jordan Bratman fyrrum eiginmaður söngkonunnar Christinu Aguilera neitar að flytja út úr 11,5 milljón dollara húsinu þeirra samkvæmt slúðurtímaritinu Us Weekly. Lögfræðingar Christinu eru komnir í málið og reyna að sannfæra manninn um að flytja út.

Jordan og Christina eiga soninn Max saman en feðgana má sjá á meðfylgjandi myndum. Þá má einnig sjá Christinu ásamt nýja kærastanum hennar, Matt Rutler, í myndasafni.

Söngkonan kynntist Matt við tökur, stuttu eftir að hún skildi við barnsföður sinn, á kvikmyndinni Burlesque, þar sem hann vann sem aðstoðarmaður sviðsmanns en Christina hefur nú þegar kynnt Matt fyrir foreldrum sínum sem segir að hún er ástfangin af manninum.

„Það ríkir mikil ást á milli okkar. Ég skemmti mér vel með honum og það er nokkuð sem ég hef ekki gert lengi," sagði Christina.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.