Lífið

White Stripes hætta

Rokkdúettinn The White Stripes hefur lagt upp laupana eftir þrettán ára samstarf.

Á heimasíðu sinni þökkuðu þau Jack og Meg White aðdáendum sínum fyrir stuðninginn. Þau sögðu margar ástæður fyrir endalokunum en stærst væri sú að þau vildu varðveita það sem væri fallegt og sérstakt við hljómsveitina.

The White Stripes gaf út sex hljóðversplötur á ferli sínum og er þekktust fyrir lög á borð við Seven Nation Army, Hotel Yorba og Fell in Love with a Girl. Síðasta plata sveitarinnar, Icky Thump, kom út árið 2007.

The White Stripes spilaði í Laugardalshöll árið 2005 við góðar undirtektir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.