Óútreiknanlegt úrslitakvöld 9. febrúar 2011 12:00 guðmundur gunnarsson Guðmundur stjórnar úrslitakvöldi Eurovision ásamt Páli Óskari Hjálmtýssyni. fréttablaðið/anton „
Það er frábært að fá hann þarna inn. Hann þekkir þetta inn og út og er nörd nördanna,“ segir Guðmundur Gunnarsson, sem verður kynnir í úrslitum Eurovision á laugardagskvöld ásamt Páli Óskari, eins og Fréttablaðið greindi frá í gær. Ragnhildur Steinunn, sem hefur staðið við hlið Guðmundar í undankeppninni, verður erlendis og því ekki með að þessu sinni. „Ef við værum ekki með Pál í úrslitaþætti Söngvakeppninnar væru þetta bara vörusvik. Ég held að margir áhorfendur yrðu svekktir ef hann yrði ekki einhvers staðar sýnilegur,“ segir Guðmundur. Hann lofar skemmtilegu úrslitakvöldi þar sem mikið verður um að vera. „Við erum að leggja drög að því að byrja þetta af svolitlum krafti. Jafnvel að við sjáum einhverja tónlistarmenn sem við tengjum ekki almennt við Eurovision sem skemmtiatriði,“ segir hann og bætir við að einnig verði fylgst náið með úrslitakeppni hinna Norðurlandanna sem verður haldin á sama tíma. Sigurvegarinn frá því í fyrra, Hera Björk, kemur í heimsókn, segir frá því sem á daga hennar hefur drifið undanfarið ár og tekur að sjálfsögðu lagið. Guðmundur býst við að keppnin um sigurlagið verði æsispennandi. „Það eru ákveðnir þættir í þessu sem gera þetta óútreiknanlegt. Það hefur oft verið þannig að maður hefur nokkra sterka hugmynd um hvaða lag sigrar en við teljum að tvö ef ekki fleiri lög komi vel til greina.“ Sjálfur hefur hann skemmt sér vel sem kynnir keppninnar. „Þetta er ólíkt öllu öðru sem ég hef gert í fjölmiðlum hingað til og er skemmtilegra en ég átti von á, þótt ég hafi reiknað með því að þetta yrði skemmtilegt.“ - fb
Mest lesið Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Lífið Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Lífið „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Lífið Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar Tónlist Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið Lífið Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Áskorun Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Menning Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Tíska og hönnun Furðubandið sem tryllti netið Lífið E.T. sýnd við lifandi undirleik Sinfó í Hörpu Lífið samstarf Fleiri fréttir Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Sjá meira