Risar á kvikmyndamarkaði slást um bók Steinars Braga 8. desember 2011 15:00 Bók Steinars Braga er ákaflega eftirsótt en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa sjö kvikmyndagerðarmenn sýnt henni áhuga. Meðal þeirra eru Sigurjón Sighvatsson, Snorri Þórisson hjá Pegasus, Sigurjón Kjartansson og ZikZak. „
Ég gæti ekki verið hamingjusamari," segir rithöfundurinn Steinar Bragi. Nýjasta bók hans, Hálendið, hefur fengið afbragðsgóða dóma og prýðilegar viðtökur lesenda. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins hafa sjö aðilar lýst yfir áhuga á að kaupa kvikmyndaréttinn að bókinni. Meðal þeirra eru ZikZak, Pegasus, Sigurjón Kjartansson, Sæmundur Norðfjörð og Sigurjón Sighvatsson. Nafn Davids Lynch hefur einnig verið nefnt á nafn, en Sigurjón og Lynch eru miklir mátar. Hólmfríður Matthíasdóttir hjá Réttindaskrifstofu Forlagsins vildi sem minnst tjá sig um málið. „Ég get sagt að það séu sjö aðilar sem sýna verkinu áhuga og hafa verið að keppa um þessa bók. Þetta mál er bara ennþá í vinnslu og ég get ekkert sagt hvað það verða mörg tilboð. Það er mjög mikill áhugi en þetta er allt á mjög viðkvæmu stigi," segir Hólmfríður og bætir því við að hún hafi ekki áður upplifað jafn mikinn áhuga á sama tíma. „Þetta er í meira lagi." Steinar Bragi sjálfur segir að draumaleikstjórinn til að gera kvikmynd eftir Hálendinu væri áðurnefndur Lynch. Skáldið hefur hins vegar báða fætur á jörðinni enda ekki í fyrsta skipti sem kvikmyndagerðarmenn sýna verki hans áhuga. ZikZak keypti kvikmyndaréttinn að verkinu Konur á sínum tíma. „Þannig að ég hef alveg lent í þessu áður," segir Steinar en kvikmyndarétturinn að þeirri bók hefur verið framlengdur um tvö ár. Steinar segir það jafnframt hafa komið sér óvart hversu hægur og hljóðlátur kvikmyndabransinn sé, allt virðist þurfa að fara mjög hljótt fram. „Það gerist allt miklu hægar en ég átti von á, ég hélt að þessi bransi væri keyrður áfram af miklu meiri hraða," segir Steinar. Bókin Hálendið er mikill sálfræðitryllir af bestu gerð sem segir frá hjónum á jeppaferðalagi um hálendið. Þegar bíll þeirra ekur óvænt á hús tekur saga þeirra óvænta stefnu sem á eflaust eftir að skjóta mörgum skelk í bringu.freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Lífið Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Lífið Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Lífið Seyfried syrgir Finn sinn Lífið Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Lífið Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Lífið Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Lífið Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Lífið „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Tíska og hönnun „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Lífið Fleiri fréttir Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Sjá meira