Tileinkuðu Magneu sigurinn 24. nóvember 2011 08:00 Krökkunum úr Skrekk-hópi Háteigsskóla var vel fagnað í skólanum þegar hópurinn var heiðraður og skólastjórinn afhenti þeim blóm af þessu tilefni. Fréttablaðið/Valli „
Af því að Magnea er einfaldlega besti íslenskukennarinn á landinu og við vildum skila þessari kveðju til hennar. Við vorum ótrúlega ánægð með að geta gert það og að hún skyldi vera að horfa á,“ segja þær Margrét Ósk Einarsdóttir, Þorbjörg Tinna Hjaltalín og Eglé Sipaviciute. Þær tóku allar þát í siguratriði hæfileikakeppninnar Skrekks sem að þessu sinni kom frá Háteigsskóla. Hópurinn ákvað að tileinka sigurinn Magneu Hrönn Stefánsdóttur, kennara í skólanum, sem greindist með krabbamein skömmu áður en keppnin fór fram. Stelpurnar viðurkenna að fréttirnar af veikindum Magneu hafi haft mikil áhrif á nemendurna, hún sé ákaflega vel liðin meðal þeirra. Og þær vonast til að hún nái bata sem allra fyrst, hennar sé sárt saknað. Þær vildu nýta tækifærið og koma á framfæri kærri kveðju til Magneu í Fréttablaðinu – henni er hér með komið á framfæri. Stelpurnar viðurkenna að þeim líði næstum eins og þjóðhetjum á göngum skólans. „Við erum allavega enn þá með medalíuna um hálsinn.“ Og þær segja að leiðbeinandi þeirra, Kolbrún Anna Björnsdóttir, eigi mikinn heiður skilinn, hún hafi sýnt þeim ótrúlega þolinmæði þegar þau hafi kannski verið á verstu stigum gelgjunnar, eins og þær komast sjálfar að orði. „Hún er drottningin, ekki nokkur spurning. Og það er ótrúlegt að hún skuli hafa tekið sér allan þennan tíma í þetta,“ segja þær. Og þegar talið berst að stóru stundinni í Borgarleikhúsinu segja stelpurnar að sigurtilfinningin í Borgarleikhúsinu hafi verið ólýsanleg og spennan yfirþyrmandi, ekki síst þegar búið var að tilkynna þriðja og annað sætið. „Þetta var tvímælalaust ein af bestu stundunum í lífi okkar.“ -fgg
Mest lesið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Fleiri fréttir Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Sjá meira