Lífið

Æðislegt að sýna fyrir vestan

Hljómsveitin Grafík í góðum gír hér á árum áður með Helga Björnsson í forgrunni.
Hljómsveitin Grafík í góðum gír hér á árum áður með Helga Björnsson í forgrunni.
Heimildarmyndin Stansað, dansað, öskrað er að koma út í tilefni þess að þrjátíu ár eru liðin frá stofnun hljómsveitarinnar Grafíkur. Frumsýningin verður á Ísafirði 24. nóvember.

„Það verður æðislegt að fara með hana vestur þar sem Grafík hélt mest til á sínum gullaldarárum," segir Bjarni Grímsson, sem leikstýrir myndinni ásamt Frosta Runólfssyni. Einnig kom Jónatan Garðarsson að verkinu. Myndin spannar feril hljómsveitarinnar og hefur verið í vinnslu síðan 2004. Bjarni var upphaflega fenginn til að mynda tónleika Grafíkur það ár, í kringum tuttugu ára afmæli plötunnar Get ég tekið cjéns. „Á sama tíma deyr Rabbi [trommuleikarinn Rafn Jónsson] og þessir tónleikar snúast úr því að vera afmælistónleikar í að vera minningartónleikar. Þar sprettur hugmyndin að taka þetta lengra," segir Bjarni um tilurð heimildarmyndarinnar.

Tvær plötur eru einnig að koma út með úrvali laga Grafíkur ásamt tveimur nýjum lögum, þar á meðal Bláir fuglar. Það var samið rétt fyrir andlát Rabba af þeim Helga Björnssyni, Rúnari Þórissyni og Rafni en textinn er eftir Helga.

Stansað, dansað, öskrað verður sýnd í Austurbæ í Reykjavík 1. desember og eftir sýninguna verða tónleikar með Grafík. Þar munu Helgi Björnsson og Andrea Gylfadóttir syngja öll vinsælustu lög hljómsveitarinnar, þar á meðal Mér finnst rigningin góð, Þúsund sinnum segðu já og Presley. - fb


Tengdar fréttir

Gamla góða Grafík lifnar við

Ein ástsælasta popphljómsveit landsins, hin ísfirska Grafík, á 30 ára afmæli þessa dagana. Í tilefni af því verður á næstu dögum frumsýnd glæný heimildarmynd og gefin út tvöföld plata með bestu lögum sveitarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.