Æðislegt að sýna fyrir vestan 17. nóvember 2011 12:30 Hljómsveitin Grafík í góðum gír hér á árum áður með Helga Björnsson í forgrunni.
Heimildarmyndin Stansað, dansað, öskrað er að koma út í tilefni þess að þrjátíu ár eru liðin frá stofnun hljómsveitarinnar Grafíkur. Frumsýningin verður á Ísafirði 24. nóvember. „Það verður æðislegt að fara með hana vestur þar sem Grafík hélt mest til á sínum gullaldarárum," segir Bjarni Grímsson, sem leikstýrir myndinni ásamt Frosta Runólfssyni. Einnig kom Jónatan Garðarsson að verkinu. Myndin spannar feril hljómsveitarinnar og hefur verið í vinnslu síðan 2004. Bjarni var upphaflega fenginn til að mynda tónleika Grafíkur það ár, í kringum tuttugu ára afmæli plötunnar Get ég tekið cjéns. „Á sama tíma deyr Rabbi [trommuleikarinn Rafn Jónsson] og þessir tónleikar snúast úr því að vera afmælistónleikar í að vera minningartónleikar. Þar sprettur hugmyndin að taka þetta lengra," segir Bjarni um tilurð heimildarmyndarinnar. Tvær plötur eru einnig að koma út með úrvali laga Grafíkur ásamt tveimur nýjum lögum, þar á meðal Bláir fuglar. Það var samið rétt fyrir andlát Rabba af þeim Helga Björnssyni, Rúnari Þórissyni og Rafni en textinn er eftir Helga. Stansað, dansað, öskrað verður sýnd í Austurbæ í Reykjavík 1. desember og eftir sýninguna verða tónleikar með Grafík. Þar munu Helgi Björnsson og Andrea Gylfadóttir syngja öll vinsælustu lög hljómsveitarinnar, þar á meðal Mér finnst rigningin góð, Þúsund sinnum segðu já og Presley. - fb
Tengdar fréttir Gamla góða Grafík lifnar við Ein ástsælasta popphljómsveit landsins, hin ísfirska Grafík, á 30 ára afmæli þessa dagana. Í tilefni af því verður á næstu dögum frumsýnd glæný heimildarmynd og gefin út tvöföld plata með bestu lögum sveitarinnar. 15. nóvember 2011 21:00 Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Björk og Yara nýtt par Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Sjá meira
Gamla góða Grafík lifnar við Ein ástsælasta popphljómsveit landsins, hin ísfirska Grafík, á 30 ára afmæli þessa dagana. Í tilefni af því verður á næstu dögum frumsýnd glæný heimildarmynd og gefin út tvöföld plata með bestu lögum sveitarinnar. 15. nóvember 2011 21:00