Kattamyndirnar seldust fljótt upp 16. nóvember 2011 10:30 Kattamyndir Vigdísar Grímsdóttur eru eftirsóttar en þær fjörutíu myndir sem voru til sýnis eru nú uppseldar. Eftirspurn eftir fleiri myndum rithöfundarins er sannarlega til staðar en Vigdís ætlar hins vegar ekki að láta þær allar af hendi. Fréttablaðið/GVA „
Þau eru svo til öll farin, bæði gefin og seld,“ segir rithöfundurinn og nú myndlistarkonan Vigdís Grímsdóttir. Málverk hennar af rauðum köttum sem voru til sýnis í Kaffihúsi Gerðubergs eru uppseld. Og eftirspurn eftir fleiri verkum Vigdísar er svo sannarlega til staðar. Rithöfundurinn lumar á nokkrum á heimili sínu í Úthlíð en er efins um að láta þau af hendi. „Ekki öll, mér þykir nú vænt um verkin,“ segir Vigdís, sem sagðist vera að passa þegar Fréttablaðið náði tali af henni. Það vakti mikla athygli þegar Vigdís upplýsti í viðtölum að hún hefði farið að mála eftir að hafa lent í hálfgerðri ritstíflu fyrir tveimur og hálfu ári vegna nýjustu bókar sinnar, Trúir þú á töfra?, sem er nýkomin út. Bókin segir frá stúlku sem fer einmitt að mála rauða ketti á svartan múr umhverfis þorpið sitt. Penslarnir losuðu um stífluna svo um munaði og Vigdís er í dag mikill ástríðumálari eins og kom fram í helgarviðtali Fréttablaðsins um miðjan september. Fyrstu málverkin hennar þykja jafnframt hafa heppnast einstaklega vel, eiginlega það vel að málverkin fjörutíu, af öllum stærðum og gerðum, ruku út. Fleiri en Vigdís þorði nokkurn tímann að vona. Rithöfundurinn fór auðvitað sínar eigin leiðir í sölu á myndunum sínum, enginn verðmiði var á þeim heldur gat fólk sent henni tölvupóst og sett fram verðhugmyndir sínar. „Það átti bara að vera í sambandi. Sumir vildu borga vel og aðrir vildu borga vel en aðeins lægri upphæð. Ég fékk hins vegar mörg mjög falleg bréf og þótti mjög vænt um það,“ segir Vigdís og viðurkennir að henni hafi komið það á óvart hversu háar fjárhæðir fólk var reiðubúið til að láta af hendi fyrir málverk eftir sig. Rithöfundurinn segist þó ekki vera orðinn ríkur á þessu hliðarspori sínu. „Nei, það er fullt af fólki sem vantar pening.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Björk og Yara nýtt par Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Sjá meira