Signý á topplista hjá Taschen 14. nóvember 2011 18:00 Signý Kolbeinsóttir og Helga Árnadóttir.
Þýski útáfurisinn Taschen gaf í árslok 2009 út bókina Illustration Now! Volume 3 þar sem Signýju Kolbeinsdóttur var skipað í hóp með áhugaverðustu teiknurum heims. Nú hefur Taschen gefið út dagatal sem inniheldur brot af því besta úr bókinni og í því er meðal annars að finna teikningar eftir Signýju. „Þetta er rosalegur heiður, að vera valin úr hópi þeirra bestu; skemmtilegt áframhald á þessu ævintýri," segir Signý ánægð með að Taschen hafi séð ástæðu til að birta aftur hluta teikninganna sem eru teknar úr myndheimi hennar Tulipop, en hann samanstendur af litríkum fígúrum í ævintýralegri umgjörð. Óhætt er að segja að Signý sé heldur ekki í amalegum félagsskap í dagatalinu frá Taschen því þar er einnig að finna myndir eftir heimsfræga listamenn á borð við Söru Antoinette Martin, Gary Baseman og Blanquet og Brosmind svo fáeinir séu nefndir til sögunnar. Dagatalið er enn ein rósin í hnappagat Tulipop, sem er hönnunarfyrirtæki í eigu Signýjar og Helgu Árnadóttur. En nýverið bættust YoYa Mart og hinar þekktu Pylones-verslanir í New York í hóp söluaðila þess. Þá hefur Tulipop landað samningi við stóra dreifingaraðila á Englandi. Fyrir eru vörur fyrirtækisins seldar í á fjórða tug verslana á Íslandi, í Svíþjóð og Bandaríkjunum.„Eiginlega er bara allt að gerast hjá okkur um þessar mundir, þessir samningar sem eru ákveðinn gæðastimpill fyrir okkur og munu opna ýmsar dyr, Taschen-dagatalið, blaðaumfjallanir og svo ný vörulína sem er unnin upp úr myndheimi Tulipop. Fyrstu eintök voru einmitt að koma í hús og fara í verslanir í byrjun desember," segir Signý. roald@frettabladid.is
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Björk og Yara nýtt par Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Sjá meira