Breytir röddinni fyrir Skyfall 10. nóvember 2011 13:30 Framleiðendur Skyfall hafa beðið Naomie Harris um að breyta aðeins röddinni, vera aðeins kvenlegri og kynþokkafyllri.
Það er ekki tekið út með sældinni að vera nýjasta Bond-stúlkan. Samkvæmt breska götublaðinu Daily Star hafa framleiðendur Skyfall, nýjustu Bond-myndarinnar, farið þess á leit við Naomie Harris að hún breyti rödd sinni. Harris á að leika hina goðsagnakenndu Miss Moneypenny og í stað þess að sitja við skrifborð sitt og bjóða James Bond velkominn á fund M með daðrandi athugasemdum á hún að vera fær leyniþjónustukona sem starfar á vettvangi dagsins. Og af þeim sökum vilja framleiðendurnir ekki að þessi fræga kona hljómi eins og táningsstúlka og hafa því beðið Harris um að lækka tóninn í röddinni sinni. „Hún er með mjög stelpulega rödd en þeir vilja hafa hana kvenlegri og kynþokkafyllri og hafa þess vegna beðið hana um að breyta röddinni fyrir framan tökuvélarnar,“ hefur Daily Star eftir heimildarmanni sínum. Það vakti töluverða athygli þegar í ljós kom að Miss Moneypenny yrði þeldökk í Skyfall. Og ef marka má orð Harris er ljóst að Bond-aðdáendur mega búist við fleiri breytingum. „Hún verður mjög sérstök,“ var haft eftir Harris sem bætti því við að hún hefði alltaf hrifist af frammistöðu Grace Jones í A View to a Kill. „Hún var ekki eiginleg Bond-stúlka, hún var þorpari.“
Mest lesið Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Nornir komu saman á miðilsfundi Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Lífið Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Tíska og hönnun Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Lífið samstarf Fleiri fréttir Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Sjá meira