Sólstafir fá góða dóma 5. nóvember 2011 11:00 Meðbyr Þungarokkssveitin Sólstafir á dyggan aðdáendahóp erlendis.
Mikill meðbyr er með þungarokkssveitinni Sólstöfum um þessar mundir. Þýska ritið Der Spiegel útnefndi hana mikilvægustu metalplötu mánaðarins. „Við höfum fengið helvíti góða dóma fyrir tvær síðustu plötur en þetta er búið að vera miklu meira. Ég hef ekki séð einn einasta dóm sem er undir meðallagi, þetta er allt saman upp á 8 til 10,“ segir Guðmundur Óli Pálmason, trommuleikari þungarokkssveitarinnar Sólstafa. Plata þeirra, Svartir sandar, kom út í Evrópu og Norður-Ameríku í október og hefur þegar fengið mikla athygli og lofsamlega dóma. Guðmundur segir þá hæstánægða með viðtökurnar út um allan heim. „Í gær birtist til dæmis dómur um plötuna okkar í Der Spiegel sem er stærsta dagblað Þýskalands. Þeir fjalla um einhverjar fimm plötur á mánuði þannig að það er mjög sjaldgæft að komast þar inn.“ Þýska ritið valdi plötuna mikilvægustu metalplötu mánaðarins, ásamt tveimur öðrum, og gaf henni 8,5 í einkunn. Hér heima hefur plötunni einnig verið tekið vel og hún situr nú í tólfta sæti á lista yfir mest seldu plötur landsins. Að sögn Guðmundar hafa orðið miklar breytingar á þungarokkssenunni hérlendis síðan 1995 þegar Sólstafir tóku til starfa. Þá hafi verið hægt að telja þungarokkara landsins á fingrum beggja handa og ólíklegt að finna plötur þeirra á metsölulistum. „Þetta er búið að breytast í dag, nú er til dæmis Skálmöld að fylla Nasa. Þetta er allt að lifna við hérna heima líka.“ Nóg er að gera fram undan hjá hljómsveitinni. „Það er allt að verða alveg fullbókað núna. Þetta byrjar allt á fullu í mars á næsta ári og við erum eiginlega orðnir uppbókaðir frá mars og út sumarið. Við verðum svo með útgáfutónleika hérna heima í febrúar þannig að við þurfum að fara að koma okkur í form aftur.“ bergthora@frettabladid.is
Mest lesið Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Lífið Jólatónleikar eru ekki tónlist. Þeir eru neyðaraðgerð Gagnrýni Afþakka miðann til Vínar vinni þeir undankeppnina Tónlist Hvert er mest óþolandi orð íslenskunnar? Menning Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Lífið Pulp Fiction leikarinn Peter Greene látinn Bíó og sjónvarp Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Lífið Heigulsleg ákvörðun Rúv, hörundsárir listamenn og versta bók flóðsins Menning Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Lífið Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Þetta þykja flottustu jólaskreytingarnar í miðborginni Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Sjö tilnefndir til Íslensku þýðingarverðlaunanna Stærstu stjörnubrúðkaupin á árinu Skorar HúbbaBúbba á hólm: „Sá sem tapar þarf að hætta að gefa út tónlist“ Fannar og Snorri slógust þar til þeir stóðu nánast naktir eftir Höfundur Kaupalkabókanna látinn „Myndi gjarnan vilja að barnið mitt færi líka í heimsókn í mosku“ Einn tenóranna þriggja með tónleika í Hörpu í mars Alltaf til í flipp en nennir ekki að borða vondan mat „Ég nenni ekki að hlusta á 7. október rökstuðninginn enn og aftur“ Einhentar íslenskar vinkonur: „Eins og við hefðum þekkst alla ævi“ Sungu um Labubu og þriðju vaktina um jólin Sjá meira