Góð tilfinning að horfa á eftir Frusciante 5. nóvember 2011 18:00 Red Hot Chili Peppers með nýja gítarleikaranum, Josh Klinghoffer. Fréttablaðið/AP
Liðsmenn Red Hot Chili Peppers eru farnir að gera upp brotthvarf gítarleikarans Johns Frusciante. Niðurstaðan er sú að á endanum hafi það verið góð tilfinning að fá nýjan mann í bandið. Hljómsveitin sendi frá sér tíundu hljóðversplötu sína, I‘m With You, fyrr á árinu. þar sem nýi gítarleikarinn, Josh Klinghoffer, birtist aðdáendum sveitarinnar í fyrsta skipti. Söngvarinn Anthony Kiedis ræddi brotthvarf Frusciante við Daily Mirror: „Tilfinningin var góð því við vissum að hann yrði ánægðari ef hann gerði eitthvað annað. Við höfðum náð svo miklu fram með John og við verðum alltaf stoltir af því.“ Kiedis segir enn fremur að tilkoma Klinghoffers hafi fært sveitinni nýjan kraft. „Josh kom inn með sjálfstraust. Innan tveggja vikna var hann farinn að sýna okkur hugmyndir sínar, sem okkur fannst mjög fallegar. Við sáum að við gátum byggt á þeim.“ Söngvarinn segir að sveitin hafi tekið upp mikið efni fyrir nýju plötuna: „Við tókum upp um 50 lög. Við kláruðum ekki öll og við þurftum að velja úr þeim en þetta bara vatt upp á sig. Þetta var svo skemmtilegur tími.“ Nýja platan hefur fengið heldur misjafna gagnrýni. Á Metacritic.com, þar sem tekin er saman gagnrýni stóru miðlanna, er platan með 6,3 í einkunn af 10 mögulegum. Aðdáendur Red Hot geta þó huggað sig við að liðsmenn sveitarinnar gerðu ekki tvöfalda plötu eins og síðast.
Mest lesið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun „Þetta breytti því hvernig ég upplifi sjálfa mig og heiminn í kringum mig“ Lífið Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur Lífið Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Lífið Bók skilað eftir 56 ára útlán Lífið Stjörnufans í sumarselskap Lífið Hugmyndir fyrir mæðradaginn Lífið Söngvakeppnin og stríðsrekstur Ísraels: „Ég er stolt af landinu mínu“ Lífið Fréttatía vikunnar: Páfakjör, poppstjarna og nýr kanslari Lífið Fleiri fréttir „Þetta breytti því hvernig ég upplifi sjálfa mig og heiminn í kringum mig“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Bók skilað eftir 56 ára útlán Hugmyndir fyrir mæðradaginn Bakaríið í beinni útsendingu Fréttatía vikunnar: Páfakjör, poppstjarna og nýr kanslari „Þetta eru þýðingarmestu skilaboð Davids Attenborough til þessa“ Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Drengurinn Fengurinn hlaut styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Leikstjórinn James Foley er látinn Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Katrín Tanja og Brooks tilkynna kynið Glæsileg íbúð handboltakempu í Sigvaldahúsi Heklaði sér fyrir útborgun í húsi í Þingholtunum Hilmir Snær og Vala eiga von á stúlku Stjörnufans í sumarselskap Söngvakeppnin og stríðsrekstur Ísraels: „Ég er stolt af landinu mínu“ Arnór Ingvi og Andrea skinu skært í sænsku konungshöllinni Sjáðu þrjátíu sekúndur af atriði VÆB í Eurovision VÆB opnar verslun í Kringlunni Reyndi við þrjár milljónir Ný heimildarmynd Attenborough sýnir eyðileggingu í höfum jarðar Stefán Einar keypti 145 milljón króna þakíbúð Logi og Hallveig keyptu hús í 101 Jói Fel ástfanginn, trúlofaður og fluttur í Hveragerði Háar hæðir og lágar lægðir Justins Bieber Sjá meira