Fúlar út í fárveika Rihönnu 4. nóvember 2011 11:00 Kolbrún Sif Hjartardóttir og vinkona hennar Rakel Edda Bjarnadóttir voru sestar í Globen tónleikahöllina í Stokkhólmi til að sjá Rihönnu á miðvikudagskvöldið þegar þeim var tilkynnt að tónleikunum hefði verið frestað vegna veikinda söngkonunnar. „
Við vorum sestar í sætin okkar og byrjaðar á fyrsta bjórnum þegar það kom maður fram á sviðið og tilkynnti okkur að hætt hefði verið við tónleikana,“ segir Kolbrún Sif Hjartardóttir, sem var ein af 20 þúsund sviknum aðdáendum tónlistarkonunnar Rihönnu í Stokkhólmi á miðvikudagskvöldið. Kolbrún Sif býr í Lundi, þar sem hún er í skiptinámi, og lagði á sig fjögurra tíma lestarferð til Stokkhólms til að hitta vinkonur sínar og sjá stórstjörnuna Rihönnu troða upp. Tónleikunum var frestað á síðustu stundu vegna veikinda söngkonunnar. „Við vorum mjög spenntar að sjá hana og það er langt síðan við skipulögðum þessa ferð, svo þetta er ótrúlega svekkjandi. Svo komu nokkrar vinkonur mínar sérstaklega frá Íslandi til að sjá Rihönnu og þær eru náttúrulega alveg brjálaðar.“ Kolbrún segir að þær hafi verið með smá fyrirvara á tónleikum og því verið duglegar að fylgjast með fréttum af heilsufari söngkonunnar á tónleikadaginn. „Við vorum fyrst að vona að karlinn á sviðinu væri að plata en þegar byrjað var að rífa niður sviðsmyndina fór þetta ekki á milli mála. Við skelltum okkur bara beint á barinn til að bæta þetta upp en það voru margir tónleikagestir grátandi.“ Miðaverðið á tónleikana var frá sex þúsund íslenskum krónum upp í 20 þúsund og býðst tónleikagestum að fá það endurgreitt. „Það var eitthvað verið að tala um að hún ætlaði að halda aukatónleika en það er ekkert grín að safna saman 20 þúsund manns aftur. Ætli maður skili ekki bara miðanum og fái endurgreitt.“ Spurð hvort hún ætli að elta söngkonuna í Evrópuferðalaginu og sjá hana troða upp annars staðar á meginlandinu svarar Kolbrún hlæjandi: „Nei, ég er eiginlega hálffúl út í hana og við erum ekki vinkonur í augnablikinu.“- áp
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira