Þú hreinlega verður að taka afstöðu 2. nóvember 2011 16:00 Bryndís Bjarnadóttir er herferðarstjóri Íslandsdeildar Amnesty International.
Mannréttindasamtökin Amnesty International standa ásamt Bíói Paradís fyrir kvikmyndadögunum (Ó)sýnileg, sem hefjast á morgun. Tólf heimildarmyndir sýna þrautseigju fólks sem berst fyrir rétti sínum. Í tilefni af fimmtíu ára starfi Amnesty International á alþjóðavísu halda samtökin á Íslandi kvikmyndahátíðina (Ó)sýnileg í Bíói Paradís. Hátíðin stendur yfir dagana 3. til 13. nóvember og verða tólf heimildarmyndir til sýnis. Samtökin gera mannréttindabrot sýnileg og krefjast úrbóta. „Heimildarmyndir eru sterkur miðill. Myndformið færir okkur inn í raunverulegar aðstæður og sýnir sannleikann. Á augabragði erum við stödd á útvarpsstöð konu í Níkaragva, sem hefur það að markmiði að segja frá ofbeldi gegn konum, eða í fangelsi hjá ungum dreng, sem sat inni ásamt hundruðum í kjölfar grænu byltingarinnar í Íran,“ segir Bryndís Bjarnadóttir, herferðarstjóri Íslandsdeildar Amnesty International. „Við áhorf myndanna verða þessir einstaklingar svo nærri þér að þú hreinlega verður að taka afstöðu og grípa til aðgerða.“ Myndirnar, sem allar hafa unnið til alþjóðlegra verðlauna, endurspegla þann raunveruleika sem viðgengst í heiminum og reynt er að fela. „Nokkrar taka á mannréttindabrotum gegn konum, aðrar gefa innsýn inn í gang mála í Norður-Afríku og Mið-Austurlöndum eða fjalla um brot á tjáningarfrelsinu.“ Áhorfendum gefst kostur á að þrýsta á yfirvöld Sýrlands, Kongó og Írans vegna þeirra sem eru þar í hættu og sæta mannréttindabrotum. „Það er vegna sýrlenskrar kvenréttindakonu, nauðgana í Kongó sumarið 2010 og samviskufanga í Íran sem hlaut sex ára dóm fyrir að nýta sér tjáningarfrelsið. Við viljum krefja yfirvöld um að vernda eftirfarandi einstaklinga og koma í veg fyrir áframhaldandi brot.“ Peter Löfgren, framleiðandi myndarinnar Travel Advice for Syria, er heiðursgestur hátíðarinnar. Myndin veitir einstaka innsýn í sýrlenskt samfélag í aðdraganda uppreisnarinnar sem hófst fyrir hálfu ári. Hann verður viðstaddur sýningu myndarinnar 8. nóvember og mun svara fyrirspurnum kvikmyndagesta. Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar er að finna á amnesty.is og bioparadis.is. hallfridur@frettabladid.is
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira