Rokkstjörnulífernið hófst í barnakór 31. október 2011 11:00 Agnes Björt er ný söngkona hljómsveitarinnar Sykurs, sem sendi nýlega frá sér plötuna Mesópótamía. Fréttablaðið/Anton „
Ég er rétt að byrja,“ segir söngkonan Agnes Björt Andradóttir, sem gekk nýlega til liðs við hljómsveitina Sykur. Sykur sendi í síðustu viku frá sér plötuna Mesópótamía, sem er önnur plata hljómsveitarinnar en sú fyrsta sem Agnes Björt syngur inn á. Sykur hefur hingað til fengið til sín gestasöngkonur – Katrína Mogensen úr Mammút og Rakel Mjöll Leifsdóttir úr Útidúr hafa gripið í hljóðnema með hljómsveitinni – en hin tvítuga Agnes Björt er fyrsta söngkonan sem gerist meðlimur í hljómsveitinni. Það er vel við hæfi þar sem hún er skráð rokkstjarna í símaskránni. „Já, maður. Ég er rokkstjarna,“ segir hún, innt eftir útskýringu á því. „Ég er búin að vera að syngja frá því að ég man eftir mér,“ segir Agnes. Hún á ekki langt að sækja hæfileikana, þar sem leikkonan Elva Ósk Ólafsdóttir er móðir hennar. „Hún er mjög sátt við að ég sé að fá útrás. Við erum báðar mjög andlegar og það er mikill listamaður í okkur. Eins og reyndar pabba mínum og öllum í kringum mig. En mamma er svakaleg. Hún tjáir sig mjög fallega og vel.“ En stóð þá aldrei til að þú færir að leika í staðinn fyrir að syngja? „Nei, það er ekki fyrir mig.“ Agnes lærði að eigin sögn allt sem hún kann í kórstarfi. „Þetta byrjaði hjá henni Þórunni Björnsdóttur kórstjóra. Hún er frábær manneskja. Að vera í kór er eitthvað það besta sem ég hef gert. Hingað til. Ég var að ferðast út um allan heim með barnakór þegar ég var lítil.“ Þar hófst rokkstjörnulífernið… „Já, í kórnum, sko. Í alvöru, það er það. Þetta er ekkert nunnulíf,“ segir Agnes í léttum dúr. Agnes hefur unnið að eigin tónlist ásamt því að vera í hljómsveitinni Elevators. Mesópótamía er fyrsta platan sem hún syngur inn á, það hlýtur að vera skemmtilegt. Eða hvað? „Þetta er fyrsta platan mín, maður. Hell yeah! þetta er mjög góð tilfinning, skal ég segja þér, og ég veit að það er að koma meira af þessu í framtíðinni.“ atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira