Tobba týnd á Skjá einum 22. október 2011 17:00 Hilmar Björnsson segir að Tobba eigi í harðri samkeppni við Grey‘s Anatomy sem sýndur er á sama tíma á Stöð 2. Hann telur það koma til greina að breyta aðeins áherslum þáttarins, þær breytingar verði þó ekki stórvægilegar. „
Við horfum auðvitað gaumgæfilega á þessar tölur og tökum allt svona föstum tökum," segir Hilmar Björnsson, dagskrárstjóri Skjás eins. Áhorf á þátt Þorbjargar Marinósdóttur, Tobba, hefur dalað mikið eftir að hafa fengið fljúgandi start. Aðra vikuna í röð kemst þátturinn ekki inn á topp tíu lista Skjás eins eftir að fyrsti þátturinn hafði mælst með rúmlega sjö prósenta áhorf í aldurshópnum 12-80 ára samkvæmt vikulegri áhorfsmælingu Capacent Gallup. Hilmar vill ekki taka svo djúpt í árinni að kalla þetta vonbrigði. Aftur á móti væri þetta eitthvað sem þarfnaðist frekari skoðunar. „Þessi tími hefur verið mjög sterkur hjá Skjá einum og þetta byrjaði mjög vel hjá Tobbu en hefur aðeins dalað," útskýrir Hilmar sem kveðst á hinn bóginn vera ánægður með aðra íslenska þætti, Málið með Sölva hafi fengið fínar viðtökur, spurningaþátturinn Ha? sé með flott áhorf hjá áskrifendum og sjónvarpsþáttaröðin Hæ Gosi mælist vel í áhorfskönnunum. „Þátturinn er klárlega stjarna Skjás eins í innlendri dagskrá, ekki spurning," segir Hilmar. Og dagskrárstjórinn segir það vel koma til greina að breyta aðeins áherslum í þætti Tobbu, það verði þó ekki stórvægilegar breytingar. „Tobba þarf bara að vera hún sjálf og finna áhugaverð mál til að taka á. Þættirnir hafa rokkað í áhorfi vegna þess að þetta hafa stundum verið mál sem fólk hefur mismikinn áhuga á." - fgg
Mest lesið Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Lífið Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Lífið Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Lífið Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Lífið Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Lífið Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Lífið „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ Lífið Tímalausar og fallegar brúðargjafir Lífið Risastór menningarhátíð á Flateyri Menning Skákborðsréttir nýjasta matartískan Lífið Fleiri fréttir Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ „Það segir eitthvað að þetta sé fjórtánda sumarið“ Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Krakkatían: Tölur, mýs og tónlist Julian McMahon látinn Var orðið að spurningu um líf og dauða Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Aron Kristinn orðinn pabbi Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sumarlegt grillsalat að hætti Hildar Rutar Umboðsmaður Jenner lést af slysförum „Þvílíkur fílingur bara“ „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Rósa og Hersir orðin foreldrar Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Staðfesta sambandsslitin Sjá meira