Lífið

Fékk ekki að vera með

Lindsay Lohan fékk ekki áheyrn hjá söngvara Foster the People á skemmtistað í Hollywood.
nordicphotos/getty
Lindsay Lohan fékk ekki áheyrn hjá söngvara Foster the People á skemmtistað í Hollywood. nordicphotos/getty
Leikkonan ólukkulega Lindsay Lohan er mikill aðdáandi hljómsveitarinnar Foster the People en meðlimir sveitarinnar virðast ekki endurgjalda aðdáunina. Lohan reyndi ítrekað að ná sambandi við söngvara sveitarinnar á skemmtistað en hann vísaði henni ávallt frá.

Lohan elti hljómsveitarmeðlimi af tónleikum og á skemmtistaðinn Beverly Lounge og reyndi ítrekað að ná athygli söngvarans Mark Foster, án árangurs. „Mark sneri sér undan í hvert sinn sem Lohan nálgaðist borðið til að reyna að ná af honum tali. Hann vildi augljóslega ekkert með hana hafa,“ sagði sjónarvottur. Foster þessi gaf sér þó tíma til að tala við Nicky Hilton, Michael Bay og Dane Cook þetta sama kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.