Þjóðverjar spenntir fyrir Heilræðum Gillzeneggers 21. október 2011 18:00 Væntanleg bók Egils "Gillzeneggers“ Einarssonar kallast Heilræði Gillz. Þýskir bókaútgefendur sýndu verkum hans áhuga á Bókamessunni í Frankfurt og í kjölfarið lét útgefandi hans útbúa þýska kápu bókarinnar, þeim til glöggvunar.
Bókamessan í Frankfurt er nýafstaðin. Þar var Ísland og íslenskar bókmenntir í öndvegi og vakti litla sögueyjan óhemju athygli. Einn rithöfundanna sem þýskir bókmenntapáfar sýndu áhuga var Egill „Gillzenegger" Einarsson. „Það ætti nú ekki að koma á óvart að hróður Gillz hafi borist út fyrir landsteinana, hvernig má annað vera um metsölurithöfund frá sjálfri sögueyjunni," segir Jónas Sigurgeirsson, útgefandi í Bókafélaginu. Jónas var einn fjölmargra íslenskra bókaútgefenda á Bókamessunni í Frankfurt á dögunum. Þar kynnti hann þær bækur sem hann hefur gefið út undanfarin misseri sem og óútkomin verk. Jónas lætur vel af för sinni en einn af þeim höfundum sem þýskir útgefendur sýndu áhuga var Egill „Gillzenegger" Einarsson. Útgefandinn leggur þó áherslu á að ekkert sé enn frágengið um útgáfu á verkum Egils: „Engir samningar hafa enn verið gerðir enda best að flýta sér hægt í þeim efnum," segir hann. „Hins vegar er búið að útbúa kápu þýskum aðilum til glöggvunar en næsta bók hans heitir Heilræði Gillz." Gillzenegger var hins vegar borubrattur þegar Fréttablaðið náði af honum tali í gær. „Þetta kom mér ekki á óvart enda hef ég rölt um götur í Þýskalandi. Þjóðverjinn er búinn til úr stáli og Stóri G-höfðinginn er búinn til úr stáli þannig að við pössum vel saman." Gillzenegger kveðst ekki hafa komist á Bókamessuna þar sem hann var við upptökur á sjónvarpsþætti á Benidorm. „Útgefandinn hringdi í mig þegar ég var á Bene og sagði mér af þessum áhuga. Mér þótti leitt að komast ekki en vil fá að lýsa yfir mikilli ánægju með þetta Frankfurtardæmi, fyrir hönd okkar rithöfunda. Halldór Guðmundsson hefur unnið þrekvirki við að koma verkum okkar á framfæri á erlendri grundu og við megum vera þakklát fyrir. Sjálfur er ég metsöluhöfundur og þarf ekki eins mikið á opinberum stuðningi að halda og til að mynda Hallgrímur Helgason. En ég er ánægður með þessa samvinnu sem sást á Bókamessunni." hdm@frettabladid.is
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira