Einfalt og stílhreint hjá Guðrúnu Heimis 30. október 2011 12:00 Guðrún rekur fyrirtækið Puzzled by Iceland sem hannar og framleiðir púsluspil undir vörumerkinu "Puzzled by".
Guðrúnu Heimisdóttur líður vel í Hafnarfirði með fjölskyldunni og fékk Föstudagur Fréttablaðsins að líta inn til þeirra. Guðrún rekur fyrirtækið Puzzled by Iceland sem hannar og framleiðir púsluspil undir vörumerkinu „Puzzled by". Hún er einnig að endurútgefa barnabækurnar um Mola litla flugustrák eftir Ragnar Lár, ásamt eiginmanni sínum. Fyrstu bækurnar eru nýkomnar í verslanir og fleiri eru væntanlegar stuttu fyrir jól. Guðrún er búsett í Hafnarfirðinum ásamt manni sínum og tveimur börnum og kann fjölskyldan vel við sig þar.Nafn: Guðrún Heimisdóttir.Aldur: 30 ára.Í hvaða hverfi býrðu og hver er helsti kostur hverfisins? Ég bý í Hafnarfirði, sem er einn notalegasti bær sem hægt er að finna og með yndislegan miðbæ. Ég er þannig staðsett að það er stutt fyrir mig að komast út úr bænum og svo er ég ekki nema mínútu að ganga upp á hæðina við Flensborg þaðan sem ég get horft yfir allan bæinn. Það er góður staður til að setjast niður og hugsa málin.Hvar líður þér best í íbúðinni? Uppi í rúmi hjá syni mínum. Þar eyðum við löngum stundum við lestur ýmissa ævintýra. Hann er farinn að þylja upp heilu bækurnar með mér og við mæðginin erum saman að kenna litlu systur hans að sitja prúð og hlusta. Hún er mikill orkubolti og skottast yfirleitt í kring á meðan ég les.Hvað einkennir heimili þitt? Það mætti segja að það væri nokkurs konar IKEA-bragur á því en ég er mjög hrifin af öllu einföldu og stílhreinu. Ég vil hafa notalegt heima hjá mér og það má brotna glas á mínu heimili. Húsið mitt er í stuttu máli sagt fullt af dauðum hlutum og svo mínum dýrmætustu „hlutum" sem er fjölskyldan mín. Á meðan fjölskyldan mín er í lagi þá er í lagi með heimilið mitt, öllu öðru má skipta út.Hvernig er dæmigerður laugardagsmorgunn hjá þér? Við förum vanalega fram úr um klukkan sjö. Litlu molarnir mínir fá „kodda" og lýsi í morgunmat og svo er hundurinn handmataður af syni mínum. Við förum stundum í sund og reynum þá að drífa okkur út sem fyrst því sundlaugarnar eru fljótar að fyllast. Annars finnst okkur líka voðalega notalegt að dóla bara heima, fara út í garð að leika eða út að labba með hundinn.Uppáhaldsskartið: Þetta hálsmen fékk ég í morgungjöf frá eiginmanni mínum. Það er bæði fallegt og táknrænt og svo kom það líka að góðum notum á meðgöngunni, þar sem það passaði vel upp á giftingarhringinn þegar bjúgurinn náði yfirhöndinni.Uppáhaldshúsgagnið: Blái sófinn frá afa mínum. Hann var inni á skrifstofunni hans og hann var vanur að leggja sig á honum. Það sést enn á áklæðinu hvorum megin fæturnir voru.Uppáhaldslistaverkið: Þetta er Guðrún, eftir Sæmund Valdimarsson. Ég fékk hana í þrítugsafmælisgjöf frá foreldrum mínum og þykir ótrúlega vænt um hana. Sæmundur nefndi hana í höfuðið á mér eftir að hafa spurt þau hverjum hún væri ætluð þegar þau keyptu hana.Uppáhaldsflíkin: Það eru annars vegar svört stígvél sem ég keypti í Sviss. Ég var alveg handviss um að ég myndi nota þau óspart og ég hef varla farið úr þeim síðustu vikurnar. Hins vegar er það grænn kjóll sem ég er með í láni frá systur minni og ég veit ekki hvort ég mun geta skilað honum. Þetta er ein klæðilegasta flík sem ég hef gengið í. Uppáhaldshluturinn: Síminn minn. Ég gríp í hann til að mynda gullkorn barnanna minna, hann geymir tölvupóstinn minn, spilar uppáhaldstónlistina mína, vekur mig á morgnana ef börnin eru ekki fyrri til og er bara alveg ótrúlega traustur félagi.
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira