Platan sem hefur vantað 20. október 2011 14:00 Bóas, Haukur og Gummi úr Reykjavík! ásamt vini sínum Nicholas Kuellet frá Kanada að föndra umslögin fyrir nýju plötuna. fréttablaðið/valli
Rokksveitin Reykjavík! hefur gefið út sína þriðju plötu, Locust Sounds. Tjöruhúsið á Ísafirði tók þátt í fjármögninni. Þriðja plata rokksveitarinnar Reykjavík!, Locust Sounds, er nýkomin út. Þrjú ár eru liðin frá síðustu útgáfu og eru þeir félagar hæstánægðir með þessa nýjustu afurð sína. „Við höfum alltaf verið í hljómsveit til að hafa gaman og gera það sem okkur finnst skemmtilegt,“ segir gítarleikarinn Haukur S. Magnússon. „Þegar við gerum plötur gerum við plötur sem við myndum sjálfir vilja kaupa. Ride [frá Bretlandi] er fáránlega góð hljómsveit með djúpan hljóðheim og raddanir. Við hugsuðum með okkur að það væri gaman að gera eitthvað svoleiðis. Svo þegar platan okkar var tilbúin hugsuðum við: „Djöfull hljómar þetta vel“,“ segir hann. „Við erum ekki endilega að dást að okkur heldur finnst okkur að loksins sé einhver búinn að gera þessa plötu sem okkur finnst hafa vantað síðan við vorum unglingar. Það vildi þannig til að það vorum við sem gerðum hana.“ Mr. Silla, krakkarnir úr FM Belfast, Erna Ómarsdóttir og Mugison voru á meðal þeirra sem sungu bakraddir á plötunni. Strákarnir borguðu hljóðverstímana úr eigin vasa, um 100 þúsund kall hver. Þeir gefa út sjálfir í samstarfi við Kimi Records. Einnig var platan fjármögnuð að hálfu af Tjöruhúsinu á Ísafirði, sem foreldrar Hauks reka. Við lokafrágang plötunnar ákváðu Haukur og félagar að leita ráða hjá tónlistarsérfræðingum um hvernig lagaröðin ætti að vera. „Við ákváðum að það væri gott að fá önnur eyru því glöggt er gests augað.“ Fyrsta lagið af Locust Sounds, Hellbound Heart, er komið í útvarpsspilun. Á næsta ári fer sveitin til Japans og Ástralíu og flytur þar dansverk ásamt Lazyblood, sem er skipuð listaparinu Ernu Ómarsdóttur danshöfundi og Valdimar Jóhannssyni úr Reykjavík!. freyr@frettabladid.is
Tengdar fréttir Biðu í tæpar átta klukkustundir Um þrjú hundruð manns biðu í langri halarófu fyrir utan verslun Smekkleysu eftir miðum á tónleika Sinéad O’Connor sem voru haldnir í Fríkirkjunni í gærkvöldi. 15. október 2011 05:00 Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira
Biðu í tæpar átta klukkustundir Um þrjú hundruð manns biðu í langri halarófu fyrir utan verslun Smekkleysu eftir miðum á tónleika Sinéad O’Connor sem voru haldnir í Fríkirkjunni í gærkvöldi. 15. október 2011 05:00