Innlent

Frjókorn aldrei mælst fleiri

Oft er hvítt yfir að líta vegna asparfrjóa. fréttablaðið/gva
Oft er hvítt yfir að líta vegna asparfrjóa. fréttablaðið/gva
Aldrei hafa verið fleiri frjókorn í lofti yfir Reykjavík en í sumar og á Akureyri mældust frjókorn yfir meðallagi. Niðurstöður frjómælinga hafa verið birtar á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands.

Júní var aðalfrjómánuðurinn í Reykjavík. Þá var birkið í blóma en frjó þess urðu sex sinnum fleiri en í meðalári og hafa aldrei verið fleiri. Asparfrjó urðu einnig ríflega sex sinnum fleiri en í meðalári. Þá fóru grasfrjó og súrufrjó líka yfir meðaltalið. Á Akureyri mældust birki- og asparfrjó yfir meðallagi en gras- og súrufrjó í tæpu meðallagi. Ágúst var aðalfrjómánuðurinn en þá var sem mest af grasfrjóum.- shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×