Lögreglumaður skar sér hryggvöðva 20. október 2011 07:00 Hreindýr Varðstjórinn aflífaði hreindýr sem var fast í girðingu við Reyðará í Lóni. fréttablaðið/vilhelm
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur ákært varðstjóra í lögreglunni á Höfn í Hornafirði fyrir að misnota stöðu sína og verða sér með því úti um hryggjarvöðva úr hreindýri. Maðurinn neitaði sök við þingfestingu málsins fyrir Héraðsdómi Austurlands í fyrradag. Varðstjóranum er gefið að sök brot í opinberu starfi. Í ákæru segir að hann hafi sunnudaginn 12. desember á síðasta ári komið því til leiðar á lögreglustöðinni á Höfn í Hornafirði, þegar hann var á frívakt, að hann sinnti sjálfur aflífun hreindýrs sem tilkynnt hafði verið um að væri fast í girðingu við Reyðará í Lóni. Þetta hafi varðstjórinn gert undir því yfirskini að hann væri að sinna verkefni lögreglu, en í þeim tilgangi að komast yfir kjöt af dýrinu til eigin nota. Í ákærunni segir enn fremur að maðurinn hafi notfært sér í þessu skyni lögreglubifreið, skotvopn og annan búnað, sem og aðstöðu lögreglu, í eigin þágu til að fara á vettvang við Reyðará og aflífa dýrið, blóðga það, færa skrokkinn á afvikinn stað og skera úr hryggvöðva. Hafi hann síðan haldið með kjötið á heimili sitt. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins hefur varðstjórinn verið í veikindaleyfi frá því að málið kom upp.- jss
Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Fleiri fréttir Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Sjá meira