Lífið

Anna Þorvalds á forsíðu iTunes

Fjallað var um fyrstu sólóplötu tónskáldsins Önnu Þorvaldsdóttur, Rhizoma, á forsíðu tónlistarveitunnar vinsælu iTunes þar sem sígild tónlist er til sölu. Platan kom út stafrænt 4. október en verður gefin út í föstu formi 25. október.

Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Daníels Bjarnasonar og Caput-hópurinn undir stjórn Snorra Sigfúsar Birgissonar koma við sögu á plötunni. Bandaríska fyrirtækið Innova Recordings gefur Rhizoma út en klassíska útgáfan Naxos dreifir. Anna hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrr á árinu fyrir besta tónverkið, Hrím, sem er einmitt að finna á plötunni. Myndband af flutningi af því má sjá hér fyrir ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.