Bresk hljómsveit rænd á Bakkusi 19. október 2011 08:00 Rob Yunioshi og félagar skemmtu sér vel á Íslandi þó að ferðin hafi ekki endað sem best. „
Ránið var svo leiðinlegt þar sem það varpaði skugga á annars frábæra ferð til Íslands,“ segir Rob Yunioshi, forsprakki hljómsveitarinnar Yunioshi. Yunioshi var stödd hér á landi í síðustu viku þegar Iceland Airwaves-hátíðin fór fram í miðborg Reykjavíkur og var hljómsveitin rænd á meðan hún kom fram á skemmtistaðnum Bakkusi. „Sumir hlutirnir sem voru teknir höfðu tilfinningalegt gildi fyrir okkur. Annað þurftum við að nota til að komast heim daginn eftir,“ segir Yunioshi. Á meðal þess sem var stolið voru vegabréf, myndavél, peningar, símar og krítarkort. „Töskurnar sem geymdu hlutina voru líka í miklum metum hjá okkur,“ segir Yunioshi, en hópnum tókst að komast heim til Bretlands þrátt fyrir vegabréfaleysið. „Ferðin á lögreglustöðina var afar hjálpleg. En þetta gerðist aðfaranótt sunnudags þannig að breska sendiráðið var lokað. Við þurftum því að treysta á lögregluna á Keflavíkurflugvelli, Iceland Express og bresk yfirvöld til að komast heim.“ Yunioshi segir einn í hópnum hafa munað eftir því að ljósrit hafi verið tekið af vegabréfum þeirra á Kex, þar sem þau gistu. Þau fengu afrit af þeim og gátu notað þau til að komast upp í flugvél og heim. „Það hjálpuðu okkur svo margir að komast heim. Svo hefur ein taskan fundist og eitt vegabréf í Reykjavík, þó að peningarnir, sími og myndavél sem voru í töskunni séu ekki þar lengur. Sá sem fann töskuna bauðst til að senda okkur hana, aftur mikil góðmennska. Við týndum kannski fullt af dóti en við munum ávallt eiga góðar minningar eftir tíu frábæra daga með hljómsveitinni Bloodgroup. Við sáum marga fallega staði á Íslandi og hittum æðislegt fólk í Reykjavík.“ - afb
Mest lesið „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Lífið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið Shakira söng fyrir milljónir á Copacabana Tónlist Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Lífið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Guðmundur og Erna eru gift Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um Lífið Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Lífið Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Lífið Fleiri fréttir „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Sjá meira