Fyrsta sjövíddarbíó heims 19. október 2011 08:00 Eyþór og félagar prófuðu bíóið í gær og skemmtu sér konunglega í hamaganginum. fréttablaðið/gva „
Sætin hreyfist ekki bara upp og niður, heldur líka til hliðar — allt upp í 200 hreyfingar á sekúndu,“ segir Eyþór Guðjónsson, framkvæmdastjóri Skemmtigarðsins sem rís nú í vetrargarði Smáralindar. Fyrsta sjövíddarbíó heims verður á meðal tækja í Skemmtigarðinum, en slík bíó hafa áður aðeins boðið upp á sex víddir. Sýningin er blanda af atriði úr kvikmynd og tölvuleik. Hún fer þannig fram að gestir setja á sig þrívíddargleraugu og spenna á sig belti. Vindur blæs á gesti meðan á sýningu stendur ásamt því að þeir munda byssur og taka þannig þátt í atburðarásinni. „Allir sem eru í bíóinu geta keppt hver við annan og líka saman sem lið. Að berjast við óvini,“ segir Eyþór. En hvernig stendur á því að fyrsta sjövíddarbíó heims verði á Íslandi? „Við vorum bara fyrst til að panta þetta. Núna heyri ég á þeim að þeir anni ekki eftirspurn í framleiðslu. Þetta er greinilega nýja æðið í skemmtigörðum í dag.“ Eyþór bætir við að tvær myndir verði í boði í bíóinu í einu og að þeim verði skipt út reglulega. Skemmtigarðurinn opnar í Smáralind í byrjun nóvember og er óðum að taka á sig mynd. 20 gámar af leiktækjum hafa verið fluttir til landsins og tugir iðnaðarmanna vinna að uppsetningunni ásamt ráðgjöfum hvaðan af úr heiminum og öðrum sem tengjast opnunni. „Síðustu gámarnir eru að lenda í þessari og næstu viku. Nú er verið að leggja lokahönd á smíðina,“ segir Eyþór. Framkvæmdir við Skemmtigarðinn í Smáralind hófust í júlí. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í sumar verður meira en 500 milljónum króna varið í verkefnið. Milligólf hefur verið byggt yfir Vetrargarðinn og verður Skemmtigarðurinn því rekinn á rúmlega 2.000 fermetra svæði á tveimur hæðum. Skemmtigarðurinn er hannaður af alþjóðlega hönnunarfyrirtækinu KCC, sem hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir hönnun og uppbyggingu innanhússskemmtigarða. „Við völdum þetta fyrirtæki KCC sem þykir fremst á sínu sviði í dag. Þeir trúðu ekki að þetta húsnæði væri laust,“ sagði Eyþór í samtali við Fréttablaðið í sumar. atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira