Gibb ætlar ekki að svíkja Bó 18. október 2011 12:00 Robin Gibb veiktist skyndilega í síðustu viku og var fluttur í skyndi á sjúkrahús. Tónleikahaldarinn Ísleifur B. Þórhallsson hefur hins vegar verið fullvissaður um að Gibb verði búinn að ná heilsu fyrir jólatónleika Björgvins Halldórssonar þar sem Gibb og Paul Potts verða meðal gesta. „
Maður hefur einhvern veginn lent í öllu og þetta fer alltaf á einhvern veginn og yfirleitt ekki á þann versta," segir Ísleifur B. Þórhallsson hjá Senu. Breski söngvarinn Robin Gibb var fluttur með hraði á sjúkrahús á fimmtudagskvöld en hann er meðal jólagesta Björgvins Halldórssonar. Í ljós kom að Gibb var með ristilbólgu en samkvæmt breska blaðinu The Sun var söngvarinn ákaflega þjáður þegar sjúkrabíllinn kom aðvífandi að glæsilegu heimili hans í Oxford-skíri. Gibb hætti við að taka upp fyrir BBC-þáttinn Songs of Praise vegna veikindanna en hann ætlar ekki að svíkja Bó. „Ég var að fá tölvupóst í hendurnar, hann er núna heima hjá sér að hvíla sig og þetta verður allt í lagi, hann ætlar að mæta," segir Ísleifur en forsala miða hefst á miðvikudag og almenn miðasala á fimmtudag. Söngvarinn sendi yfirlýsingu til breskra fjölmiðla sem sýnt höfðu veikindum hans mikinn áhuga og bað um næði fyrir sig og sína fjölskyldu. „Þetta er erfiður tími fyrir alla. En Gibb vill koma á framfæri þakklæti til allra vina sinna og aðdáenda sem hafa sent honum hlýjar kveðjur," segir í yfirlýsingunni sem The Sun birti. Undirbúningur fyrir Jólagesti Björgvins er nú í fullum gangi og um helgina hefst leitin að sérstakri jólastjörnu sem mun verða þess heiðurs aðnjótandi að syngja á tónleikunum. Meðal þeirra sem sitja í dómnefndinni eru Björgvin sjálfur, Jóhanna Guðrún og Jóhannes Haukur.- fgg
Mest lesið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Lífið Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Lífið Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð Tónlist „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ Lífið Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Bíó og sjónvarp Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Lífið Fleiri fréttir Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ „Hún er í hljóðverinu núna“ Hvað veistu um… One Direction? Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Hvað er í gangi á Svalbarða? Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Sonur Mari og Njarðar fæddur Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Sjá meira