Stærsta hlutverk Halldórs 8. október 2011 11:15 Hlutverk Einars í Heimsendi er stærsta hlutverk Halldórs Gylfasonar í sjónvarpi eða kvikmyndum. Þótt hann og Jörundur Ragnarsson séu í stærstu rullunum léku þeir aðeins saman í örfáum senum.Fréttablaðið/Stefán
Halldór Gylfason leikur aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttunum Heimsendi sem hefja göngu sína á Stöð 2 á sunnudagskvöld. Hann las meðal annars Ljósu og horfði á Richard Gere-myndina Mr. Jones til að búa sig undir hlutverkið. Heimsendir, sem verður frumsýndur á sunnudagskvöldið, segir frá hálfgerðri uppreisn sem á sér stað á geðveikraheimili úti á landi um verslunarmannahelgi árið 1992. Heill her stórleikara fer með stærstu hlutverkin; Pétur Jóhann Sigfússon, Jörundur Ragnarsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Jóhann Sigurðarson og Karl Ágúst Úlfsson svo einhverjir séu nefndir. Þættirnir koma úr smiðju Vaktahópsins svokallaða sem gerði Nætur-, Dag- og Fangavaktina en Heimsendir er mun stærri í sniðum og persónugalleríið umfangsmeira. Með aðalhlutverkið í þáttunum fer hins vegar Halldór Gylfason, en hann var viðloðandi Vaktaþættina sem Kiddi Casio úr stuðhljómsveitinni Sólinni frá Sandgerði. Halldór leikur grunnskólakennarann Einar, sem fer yfirum og er færður á geðveikraheimilið. „Taugarnar fara hjá honum, hann fær ranghugmyndir og fer í manískt ástand. Hann kemur hins vegar með nýjar hugmyndir og gerir vistmönnum grein fyrir réttindum sínum og í kjölfarið fer af stað atburðarás og hlutir fara að breytast,“ útskýrir Halldór. Mikill undirbúningur liggur að baki sköpun persónunnar, en Halldór sótti meðal annars í reynslubankann sinn frá því að hann starfaði á geðdeild í nokkur ár. Auk þess ræddi hann við fólk sem þekkir vel til geðrænna veikinda, las Ljósu eftir Kristínu Steinsdóttur og horfði á kvikmyndina Mr. Jones með Richard Gere í aðalhlutverki. „Þetta er mesta og stærsta hlutverkið mitt í sjónvarpi eða kvikmyndum og þetta var virkilega erfitt, enda Einar mikill karakter en jafnframt veikur maður. Ég var byrjaður að pæla í honum hálfu ári áður en tökur hófust,“ segir Halldór en viðurkennir um leið að honum hafi þótt vænt um hlutverkið. „Ég sakna þess pínulítið, þetta var góð rulla og Einar er góður gaur sem verður bara veikur.“ Tökurnar á Heimsendi stóðu yfir í átta vikur og tökudagarnir voru langir, stundum tólf til fjórtán tímar. Halldór segir hins vegar ekki hafa verið þverfótað fyrir skemmtilegu fólki og tími milli taka hafi verið nýttur til að spjalla, fá sér kaffi og lesa. „Við máttum bara alls ekki fara í sólbað af því að þetta gerist náttúrlega yfir eina helgi. Ég varð því að passa mig á því þegar ég fór í frí að koma ekki aftur eins og karfi. Enda verð ég ekki sólbrúnn heldur bara rauður.“freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Adda og Alfreð eignuðust dreng Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Sjá meira