Lífið

Plötu Of Monsters lekið erlendis

Of Monsters and men
Of Monsters and men
f
„Þetta kemur mér ekkert á óvart,“ segir Haraldur Leví Gunnarsson hjá Record Records.

Fyrstu plötu Of Monsters and Men, My Head Is an Animal, hefur verið lekið á erlendar netsíður. Platan kom út hér á landi 20. september á vegum Record Records en á enn eftir að koma út erlendis.

„Það er kannski hluti af vandamálinu. Það er ennþá verið að vinna í þeim málum,“ segir Haraldur Leví. „Hún er orðin alveg fáránlega vinsæl úti og við erum búin að fá margar fyrirspurning frá fólki sem vill kaupa diskinn úti,“ segir hann og bætir við að hljómsveitin sé komin í mikla spilun hjá einni af stærstu útvarpsstöðvunum í Fíladelfíu í Bandaríkjunum. „Slíkt kemur ekki fyrir bönd áður en þau skrifa undir samning við stór útgáfufyrirtæki.

Einhver útvarpsmaður sá lagið á Youtube, keypti demóið á iTunes og byrjaði að spila það.“

Líklegt er að My Head Is an Anmial komi út erlendis eftir áramót og í framhaldinu muni Of Monsters and Men fara í tónleikaferð til að fylgja henni eftir.

Platan hefur selst í um tvö þúsund eintökum á aðeins rúmum tveimur vikum og er fyrsta upplag útgefanda við það að klárast. Tvennir útgáfutónleikar í Gamla bíói í Reykjavík á fimmtudagskvöld heppnuðust mjög vel og frumflutti sveitin þar eitt nýtt lag.- fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.