Flottasta giggið á Airwaves haldið í 90 fermetra íbúð 8. október 2011 10:00 Aron Steinn, Steinþór Helgi og Atli Bolla verða með flotta Off Venue-dagskrá á Airwaves í næstu viku.fréttablaðið/Valli „
Fólk á ekki að hugsa um þetta sem tónleika heldur sem partí,“ segir Steinþór Helgi Arnsteinsson. Steinþór leigir íbúð við Ingólfsstræti 8 ásamt Aroni Steini Ásbjarnarsyni og Atla Bollasyni, fyrrum hljómborðsleikara Sprengjuhallarinnar. Þeir hafa ákveðið að taka Airwaves-tónlistarhátíðina með miklu trompi og bjóða upp á metnaðarfulla Off venue-dagskrá á heimili sínu um næstu helgi. „Við strákarnir elskum að hafa gaman saman og þetta lá einhvern veginn beint við. Við þekkjum mjög marga í tónlistarheiminum og dagskráin fylltist fljótt. Þetta var snjóbolti sem breyttist í snjóflóð,“ segir Steinþór. Steinþór segir að öll húsgögn í stofunni verði sett til hliðar og í staðinn komi hljóðkerfi. Hann segir að íbúðin rúmi kannski um hundrað manns en 20-30 ættu að komast fyrir í stofunni. „Fólk getur tjillað inni í herberginu mínu og talað um skrýtna gaurinn í röðinni frá kvöldinu áður. Þetta á bara að vera gott partí, eini munurinn er að í staðinn fyrir að það komi tónlist frá græjunum þá kemur hún frá lævbandi inni í stofu.“ Steinþór segir að tvö af stærstu nöfnum hátíðarinnar spili á heimili þeirra, Owen Pallett og Glasser, auk þess sem þekkt íslensk nöfn á borð við Berndsen troða upp. „Við erum ekkert að stressa okkur á þessu, ef rafmagnið slær út þá heldur partíið bara áfram,“ segir hann. Dagskrá verður á Ingólfsstræti 8 föstudag og laugardag frá klukkan 15 til 20.30. „Við vorum að pæla í því að láta dagskrá hefjast að nýju eftir fjögur á nóttunni en ákváðum að hlífa nágrönnunum við því.“ hdm@frettabladid.is
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Adda og Alfreð eignuðust dreng Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Sjá meira