Örkin hans Nóa á hvíta tjaldið 6. október 2011 21:00 Það verður forvitnilegt að sjá hvernig Aronofsky tekst að koma örkinni hans Nóa á hvíta tjaldið.
Bandaríski leikstjórinn Darren Aronofsky hefur fengið Paramount-kvikmyndaverið til að fjármagna næstu kvikmynd sína, Noah. Eins og nafnið gefur til kynna fjallar myndin um Nóa og þær miklu byrðar sem Guð Gamla testamentisins leggur á hann þegar honum er falið að byggja örk og bjarga öllum tegundum jarðar undan syndaflóðinu. Myndin mun að öllum líkindum kosta minnst 130 milljónir dollara í framleiðslu og er gert ráð fyrir að tökur hefjist strax á næsta ári. Verkefnið hefur verið lengi í bígerð en leikstjórinn ræddi það fyrst árið 2007 við kvikmyndatímaritið Empire. Hins vegar hefur gengið erfiðlega að fá kvikmyndaverin til að fjármagna það, þar til nú. „Síðan í barnæsku hef ég verið heillaður af sögunni um Nóa og ferðalagi fjölskyldu hans. Sagan hefur verið mörgum mikill innblástur og mig langar virkilega til að sýna ástríðu Nóa á hvíta tjaldinu.“ Aronofsky hefur einnig lýst því yfir að hann vilji hafa myndina eins raunverulega og hægt er. „Hún verður ekki á gamansömum nótum eins og tíðkast hefur um Nóa-myndir heldur verður hún meira í ætt við vísindaskáldsögu.“ Aronofsky er sennilega einhver frumlegasti leikstjóri Hollywood um þessar mundir. Kvikmyndir hans hafa hlotið einróma lof gagnrýnenda en á ferilskrá hans eru meðal annars The Black Swan, The Wrestler og Requiem for a Dream.- fgg
Mest lesið Einlæg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið Lífið Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Lífið Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Lífið Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar Lífið Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ Lífið Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Lífið Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Lífið „Þegar ég hitti þá fyrst pissaði ég á mig“ Lífið Mælir með að geyma snípinn þar til síðast Lífið Aukasýningu bætt við á vinsælustu ABBA sýningu heims Lífið samstarf Fleiri fréttir Einlæg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ „Þetta var eins og draumur sem ætlaði aldrei að taka enda“ „Þegar ég hitti þá fyrst pissaði ég á mig“ Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar „Fullkomin viðbót“ hjá Selmu og Sölva Uppáhalds sumardrykkur Gerðar: „Ég fæ ekki nóg“ Felix kveður Eurovision með tárum Matti og Brynhildur selja slotið og stefna á sveitasæluna Bríet og Reykjavíkurdætur á Kvennavöku annað kvöld Styrktarforeldrið Hafdís er fundin Quarashi aftur á svið Mikil stemning á Íslandshátíð í Tívólí í Kaupmannahöfn Merktur LXS skvísunum fyrir lífstíð Kristín og Þorvar gáfu syninum nafn á þjóðhátíðardaginn Mos Def staðfestur og unnið að fleiri tónleikum í stað Lóu Rappa á lýðveldishátíð í tívolíinu: „Heyri eiginlega bara íslensku hérna“ Indverji á leið til landsins leitar að SOS foreldrinu Hafdísi Bieber í basli: „Ég veit að ég er skemmdur“ Magnús hjá Blue Car kaupir glæsiíbúð Bjögga Thors Dóttir Hilmis Snæs og Völu er Völudóttir Rikki G og fjölskylda sprengdu blöðruna Sveindís Jane og Rob ástfangin í Abu Dhabi Stjörnulífið: „Stefnir í skvísulæti og almenna kynvillu hjá þessum fjórum“ Hefndi sín í tilefni af feðradeginum Sjá meira