Boðið á fjórtán erlendar hátíðir 5. október 2011 06:00 Stuttmyndin In a Heartbeat sem Jón Gústafsson framleiddi hefur fengið mjög góðar viðtökur. „
Þetta er voðalega gott gengi miðað við litla íslenska stuttmynd,“ segir Jón Gústafsson. Stuttmyndin In a Heartbeat, sem Jón framleiddi og konan hans, Karolina Lewicka, leikstýrði, hefur verið sýnd víða um heim að undanförnu við góðar undirtektir. Myndinni hefur verið boðið á fjórtán hátíðir til þessa og meðal annars hefur hún verið sýnd á Ítalíu, í Kanada og Úrúgvæ þar sem hún var valin besta dramatíska stuttmyndin. Sömuleiðis fékk hún aukaverðlaun á Columbus-hátíðinni í Ohio. In a Heartbeat verður sýnd á alþjóðlegri barnamyndahátíð í Chicago í næsta mánuði og einnig er búið að bjóða Jóni til Indlands í nóvember. „Hún er að fara á allar topp tíu barnamyndahátíðirnar,“ segir Jón, sem tekur þó fram að myndin hafi ekki verið gerð sérstaklega fyrir börn. Hún fjallar um níu ára stelpu sem öðlast kjark til að rísa upp á móti ódæðismönnum. Með hlutverk stelpunnar fer Elín Perla Stefánsdóttir. In a Heartbeat var frumsýnd á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík í fyrra og var í framhaldinu tilnefnd til Edduverðlaunanna. Aðspurður segir Jón viðbrögðin við myndinni hafa verið miklu betri en hann þorði að vona. „Ég var sáttur við að hún færi bara á hátíðina í Reykjavík, ekki meira en það, en nú er hún búin að vinna þessi verðlaun.“ Síðasta mynd Jóns, Reiði guðanna, sem fjallar um gerð myndarinnar Bjólfskviðu, var einnig sýnd á fjölda kvikmyndahátíða og vann hún til margra verðlauna. - fb
Mest lesið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Lífið Fleiri fréttir Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Sjá meira