Jakob Frímann gerist trúbador 24. september 2011 14:00 Jakob Frímann Magnússon kemur fram sem trúbador á mikilli hátíð á Obladí Oblada um næstu helgi. fréttablaðið/gva „
Ég geng að þessu kvíðalaust sem öðru. Maður á aldrei að vera hræddur við að ögra sjálfum sér,“ segir Jakob Frímann Magnússon. Hann stígur á svið með kassagítar á trúbadorahátíð sem Stuðmaðurinn Tómas M. Tómasson skipuleggur og verður haldin í fyrsta sinn á skemmtistaðnum Obladí Oblada um næstu helgi. Jakob Frímann hefur lítið gert af því að bregða sér í trúbadoragírinn en ákvað að gera undantekningu í þetta sinn. „Þetta gerist helst bak við luktar dyr á einkaheimilum. En þegar Tómas stórvinur minn Tómasson hringir segi ég undantekningarlaust „já“.“ Jakob hefur reyndar áður komið fram á Obladí en þá með Bítladrengjunum blíðu, sem spila þar á fimmtudagskvöldum. Fyrsta hljóðfærið sem Jakob eignaðist var gítar og því er hann ekki ókunnur hljóðfærinu þrátt fyrir að vera þekktari sem hljómborðsleikari Stuðmanna. „Faðir minn blessaður kenndi mér fyrstu gripin. Svo var ég fyrsti gítarleikari Stuðmanna. Ég geymi alltaf gítar einhvers staðar nálægt mér og ég hef samið mörg lög á gítar.“ Spurður hvaða lög hann ætli að syngja segir Jakob: „Ég hef ekki haft tíma til að leiða hugann að því enn þá. Fyrst ætla ég að glöggva mig á vinnukonugripunum og síðan ætla ég að sjá hvort ég nái ekki í munnörpu um hálsinn til að verða alveg ekta.“ Á meðal annarra tónlistarmanna sem koma fram á hátíðinni verða Skúli mennski, Gímaldin, Gunnar Þórðarson, Magnús Einarsson, Hjalti Þorkelsson, Egill Ólafsson, Kormákur Bragason, Andrea Gylfadóttir og Eggert feldskeri.- fb
Mest lesið „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Fleiri fréttir „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Sjá meira