Tárvotir áhorfendur í Torontó 14. september 2011 10:00 „
Þetta eru án nokkurs vafa bestu viðtökur sem við höfum fengið á þessum kvikmyndahátíðum," segir Rúnar Rúnarsson kvikmyndaleikstjóri. Kvikmynd hans, Eldfjall, var sýnd á kvikmyndahátíðinni í Torontó um helgina en myndin verður frumsýnd hér á landi á RIFF, alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík. Eldfjall er fyrsta kvikmynd Rúnars í fullri lengd og hefur vakið töluverða athygli. Hún verður meðal annars fulltrúi Íslendinga í forvalinu til evrópsku kvikmyndaverðlaunanna en kosið verður um hvaða myndir verða tilnefndar í september. „Ég held að það hafi sjaldan eða aldrei verið jafn margar góðar myndir frá Evrópu og í ár þannig að samkeppnin verður hörð," segir Rúnar. Áhorfendur í Torontó voru ákaflega hrifnir af Eldfjalli og upplýsir Rúnar meðal annars að hann hafi hreinlega þurft að hugga suma áhorfendur sem lágu tárvotir í faðmi hans. „Myndin virðist hafa snert mjög viðkvæmar taugar," segir Rúnar. Gengið var frá dreifingu myndarinnar til Noregs og Danmerkur og Rúnar viðurkennir að hann sé spenntur fyrir að sjá hvað meira komi út úr ferðinni. Eins og mörgum er eflaust enn í fersku minni var Rúnar tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir stuttmyndina sína, Síðasti bærinn í dalnum. Rúnar segir ánægjulegt að þær dyr sem opnuðust þá skuli ekki vera lokaðar og læstar, það hafi komið berlega í ljós í Torontó. „Og ef þær voru það þá var rykið bara dustað af þeim, ég hitti marga umboðsmenn þarna úti og það er margt spennandi í gangi. En maður heldur bara báðum fótum á jörðinni." - fgg
Mest lesið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Lífið samstarf Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni Lífið samstarf Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Lífið Nornir komu saman á miðilsfundi Lífið Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Lífið Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Lífið Fleiri fréttir Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Sjá meira