Myndaði fyrir Lexus-herferð 14. september 2011 15:30 "Oft eru það nú frekar litlu hlutirnir en þeir stóru sem hrinda af öllu af stað,“ svarar Marinó pollrólegur, spurður hvort hann telji að Lexus-herferðin eigi eftir að opna nýjar dyr. Fréttablaðið/Valli
Marinó Thorlacius hefur síðustu ár verið að skapa sér nafn sem ljósmyndari á alþjóðavettvangi. Nýjasta skrautfjöðrin í hattinn er viðamikið verkefni sem Marinó vann fyrir japanska bílaframleiðandann Lexus þar sem Reykjavík og íslensk náttúra eru í lykilhlutverki. „Þeir höfðu samband við mig með stuttum fyrirvara og að því er virtist upp úr þurru til að kanna hvort ég gæti tekið myndatökuna að mér. Ég sló bara til," segir Marinó. Hann vísar þar í markaðsrisann Story WorldWide sem réði hann í verkefnið, en fyrirtækið er með starfsemi í þremur heimsálfum og fjölda þekktra vörumerkja á sínum snærum, svo sem Karen Millen, Starbucks, Clinique og Lexus. Í herferðinni sem Marinó var fenginn til að mynda er nýjasta gerð tvinnjeppa frá Lexus, Full Hybrid RX 450h, kynnt til sögunnar í kunnuglegu umhverfi höfuðborgarinnar og nágrennis. Hann vill ekki geta til um hvert umfang hennar kemur til með að verða. Þó liggi ljóst fyrir að hún verði meðal annars notuð í tímariti sem Lexus og Story WorldWide gefa út í sameiningu og dreifa á Evrópumarkað. „Þannig að viðbúið er að auglýsingin eigi eftir að vekja einhverja athygli." Segja má að Lexus-herferðin marki nýtt skref fyrir Marinó sem hefur hingað til aðallega fengist við tísku- og landslagsljósmyndun. Nýverið vakti hann verulega athygli fyrir ljósmyndir sínar af herralínu hönnuðarins Sruli Recht sem sýndar voru við góðar undirtektir í París fyrr á árinu. Hann telur hugsanlegt að þær hafi orðið til þess að Story WorldWide sló á þráðinn. Heldurðu að herferðin eigi eftir að opna þér nýjar dyr? „Oft eru það nú frekar litlu hlutirnir en þeir stóru sem hrinda öllu af stað," segir Marinó og viðurkennir að ýmis spennandi verkefni séu í gangi en ótímabært að ræða þau að sinni. roald@frettabladid.is
Mest lesið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Lífið Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Lífið McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Lífið Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Lífið samstarf Þríbætti tíma kærastans í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu Lífið Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Lífið Fleiri fréttir Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Endar örugglega sem 83 ára drottning í Gleðigöngunni Hver er Endakallinn frá Ibiza? Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Íhuga að skrifa bók um kaffihúsin á þúsund kílómetra hjólarúnti McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Stutt í að uppselt verði í heilt og hálft Þríbætti tíma kærastans í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf Ástralskur hommasirkus skemmtir börnum og fullorðnum í Tjarnarbíói Húsgögn úr afgöngum og fiskar í gosbrunninum Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Kveður föður sinn með tilvitnun í Hunter S. Thompson Walking Dead-leikkona látin Tók sterkan kjúklingabita í stað þess að styggja Íslendinga Gekk hringinn í kringum landið fyrir vannærð börn í Afríku Marín Manda og Hannes Frímann trúlofuð Terry Reid látinn Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Samsæri tóbaksframleiðenda í reykfylltum bakherbergjum „Mig langar ekki lengur að deyja“ Loni Anderson er látin „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Calvin Harris orðinn faðir Rod Stewart sýnir Ozzy taka sjálfur í himnaríki Sjá meira