Metropolitan-safnið keypti listaverk Katrínar Sigurðar 10. september 2011 14:00 Myndlistarmaðurinn Katrín Sigurðardóttir hefur selt verk sitt Boiserie til Metropolitan-safnsins í New York. fréttablaðið/Stefán „
Þetta er mikill heiður," segir myndlistarmaðurinn Katrín Sigurðardóttir. Metropolitan-safnið í New York hefur keypt listaverk hennar Boiserie sem var sett þar upp á síðasta ári. Metropolitan er eitt stærsta listasafn heims og því um mikla upphefð fyrir Katrínu að ræða. Ekki er vitað til þess að safnið hafi áður keypt verk eftir Íslending. „Þetta er eins góð útkoma og nokkur getur óskað sér þegar safn hefur áhuga á verkinu manns. Sérstaklega safn eins og hér um ræðir sem geymir marga af mikilvægustu listmunum og listaverkum sem mannkynssagan geymir," segir Katrín. Hún sýndi tvö verk í safninu undir yfirskriftinni Boiseries og voru þau sérstaklega unnin fyrir safnið. Sýningin sjálf hét Katrin Sigurdardottir at the Met. Katrín, sem er búsett í New York og í Reykjavík, er þekkt fyrir endurgerð og túlkun á stöðum, bæði raunverulegum og ímynduðum. Innsetningar hennar á safninu voru endurgerðir í fullri stærð á tveimur frönskum herbergjum frá 18. öld sem eru varðveitt í Metropolitan-safninu. Spurð um hvers vegna hún ákvað að endurgera herbergin segir Katrín: „Við það að fá tækifæri til að sýna í þessu safni var mjög eðlilegt að maður beindi sjónum sínum að safninu sjálfu og öllum þessum stórkostlegu listaverkum sem eru þar. Að velja þessi herbergi hefur líka töluvert með það að gera að mitt áhugasvið liggur mjög oft í stöðum og staðsetningum. Það er þess vegna sem ég valdi að endurgera þessi herbergi frekar en að endurgera málverk, búninga eða postulínsstyttur." Katrín vill ekki gefa upp hvað Metropolitan borgaði fyrir listaverk hennar en síðasta fimmtudag spjallaði hún við gesti Listasafns Reykjavíkur um sýninguna í New York ásamt Anne L. Strauss, sýningarstjóra Metropolitan. Rúmlega 173 þúsund gestir komu að sjá sýningu Katrínar í Metropolitan-safninu sem er magnaður árangur og ólíklegt að nokkur annar Íslendingur hafi fengið jafnmarga á einkasýningu sína. Sýningin stóð yfir frá október í fyrra þangað til í júní síðastliðnum. Fjölmiðlar fóru afar fögrum orðum um Katrínu og verkið hennar, þar á meðal The New York Times, The New Yorker og tímaritið Artforum. freyr@frettabladid.is
Mest lesið „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun Loksins sást til hjónanna Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Fleiri fréttir „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Sjá meira