Hundrað myndir á 11 dögum 9. september 2011 10:00 Um tuttugu manns starfa við Riff-hátíðina í ár. Hér er hópurinn samankominn ásamt vini hátíðarinnar, Filmundi. fréttablaðið/gva
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hefst í áttunda sinn eftir tvær vikur. Um eitt hundrað myndir verða í boði og ættu gestir því að finna eitthvað við sitt hæfi. Áttunda Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík, Riff, fer fram 22. september til 2. október. Um eitt hundrað myndir verða sýndar á þessum ellefu dögum, sem er nokkuð minna en í fyrra þegar myndirnar voru 140 talsins. Um er að ræða kvikmyndir í fullri lengd, heimildarmyndir og stuttmyndir. Alls voru um 900 myndir sendar á hátíðina í von um að þær yrðu sýndar og er það nýtt met. „Við erum gríðarlega stolt og ánægð með þetta flotta prógramm okkar,“ segir Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi Riff. Hátt í 25 þúsund gestir sóttu hátíðina í fyrra, sem er góður árangur. Hrönn vill þó gera enn betur í ár. „Við viljum fá ennþá fleiri í bíó, það er engin spurning. Við erum að sýna myndir sem snerta á svo mörgu í samfélaginu. Um 70% myndanna koma frá Evrópu. Við viljum spegla okkur í þeim myndum sem koma þaðan enda erum við fyrst og fremst Evrópubúar.“ Sem fyrr eru það stóru flokkarnir þrír, keppnisflokkurinn Vitranir, úrvalsflokkarnir Kastljósið og Fyrir opnu hafi sem kvikmyndaáhugafólk bíður hvað spenntast eftir. Tólf myndir keppa í flokknum Vitranir þar sem ferskar myndir ungra leikstjóra verða sýndar. Sigurvegarinn fær afhent aðalverðlaun hátíðarinnar, Gyllta lundann, og í fyrsta sinn keppir íslensk mynd í flokknum, eða Eldfjall eftir Rúnar Rúnarsson. Á hátíðinni verða sýndar nýjar myndir eftir leikstjóra á borð við Aleksandr Sokurov, Wim Wenders, James Marsh, Spike Jonze, Kevin Smith, Lone Scherfig, Michael Rapaport og Béla Tarr. Sá síðastnefndi verður einmitt heiðursgestur hátíðarinnar. Þrjár af myndum þessa ungverska leikstjóra verða sýndar, þar á meðal Hesturinn í Tórínó. Tarr lýsti því nýlega yfir að hann væri hættur kvikmyndagerð en Gus van Sant er mikill aðdáandi hans. Upplýsingamiðstöð Riff verður í bókaverslun Eymundsson við Austurstræti. Bíósýningarnar verða í Bíó Paradís, Háskólabíói, Norræna húsinu og í Iðnó. Forsala er hafin á Riff.is á pössum og klippikortum. Hátíðarpassi kostar 9.200 krónur og veitir aðgang að öllum myndum hátíðarinnar. Klippikortið kostar 7.500 krónur og veitir aðgang að átta sýningum og geta fleiri en einn notað kortið. Miðar á stakar sýningar kosta 1.100 krónur. freyr@frettabladid.is
Mest lesið „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Fleiri fréttir „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Sjá meira