Töff einstæðar útivinnandi mæður 5. september 2011 10:15 Kristín og Þóra Tómasdætur gefa út uppflettirit fyrir stelpur í haust þar sem þær svara spurningum um allt milli himins og jarðar. Fréttablaðið/valli „
Við erum að reyna að upphefja stelpumenningu á Íslandi," segir Kristín Tómasdóttir sem ásamt systur sinni, Þóru, er að leggja lokahönd á uppflettirit fyrir stelpur sem kemur út í haust Systurnar gáfu í fyrra út Bók fyrir forvitnar stelpur sem seldist eins og heitar lummur og segir Kristín að vinsældir bókarinnar hafi sýnt að það er greinileg vöntun á efni fyrir þennan markhóp, stelpur. „Vinsældir síðustu bókar sýndu að það er ákveðið pláss í samfélaginu fyrir þennan markhóp sem þarf að fylla. Þess vegna ætlum við að halda áfram að fræða stelpur um allt milli himins og jarðar. Þegar við vorum að kynna síðustu bók komust við að því að stelpur eru áhugasamar um ólíka hluti. Það var í raun fullt af spurningum ósvarað," segir Kristín og bætir við að þessi bók sé persónulegri en sú fyrri. Bókin er sett upp eins og uppflettrit þar sem spurningar eru flokkaðar niður eftir bókstöfum. Undir bókstafnum Á eru til dæmis spurningar tengdar áfengi. Kristín og Þóra söfnuðu spurningunum saman gegnum rýnihóp á netinu og frá stúlkum sem komu á bókakynningar þeirra í skólum og tómstundamiðstöðvum. „Það er smá „Kæri sáli" fílingur í þessu og ég hef sjálf verið mjög forvitin að vita svörin við mörgum af þessum spurningum. Við erum allar stelpur inn við beinið og þetta er viðfangsefni sem snertir okkur allar," segir Kristín og viðurkennir að þær systur séu gott teymi. „Við höfum alltaf verið teymi, núna rithöfundateymi. Svo erum við líka báðar töff einstæðar útivinnandi mæður." - áp
Mest lesið Telur notkun á lagi í Miðflokks-stuðningsmyndbandi siðlausa Lífið Heldur ótrauð áfram þrátt fyrir að ná ekki milljónamarkmiðinu Lífið Stjörnulífið: „Ég get ekki frestað þessu lengur“ Lífið Bæði sorg og gleði að ala upp fimm börn með sérþarfir Lífið Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Lífið „Hæ ástin mín, Nýtt í hverjum mánuði á fimmtudaginn, ertu laus?“ Áskorun Glódís Perla og Kristófer gengu í það heilaga Lífið „Fyrri kona mannsins míns er með Parkinson, ekki ég“ Áskorun Melanie Watson er látin Lífið Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Lífið Fleiri fréttir Telur notkun á lagi í Miðflokks-stuðningsmyndbandi siðlausa Stjörnulífið: „Ég get ekki frestað þessu lengur“ Heldur ótrauð áfram þrátt fyrir að ná ekki milljónamarkmiðinu Brigitte Bardot er látin Glódís Perla og Kristófer gengu í það heilaga Bæði sorg og gleði að ala upp fimm börn með sérþarfir Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Frægir fjölguðu sér árið 2025 Gítarleikari The Cure er látinn Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Sjá meira
Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein