Gengið og prjónað 31. ágúst 2011 11:00 Þátttakendur settust reglulega niður með prjónana á leiðinni. Í ferðinni voru tveir karlar og tíu konur.
Helene er frönsk en flutti til Íslands árið 1995. Hér er hún með peysuna sem henni tókst að mestu að klára á einum degi á leið sinni yfir Fimmvörðuháls. Brúðan Henrietta er dæmi um frekari afrakstur úr ferðinni en uppskrift að henni má finna á prjonakerling.is. Hélène Magnússon, hönnuður og eigandi prjónaritsins prjonakerling.is, er nýkomin úr prjónaferð yfir Fimmvörðuháls. Hún fór fyrir tólf manna fjölþjóðlegum hópi og afrekaði það að prjóna heila peysu á leiðinni. „Í gamla daga þegar fólk mátti engan tíma missa var ekki óalgengt að konur jafnt sem karlar prjónuðu á meðan gengið var á milli bæja eða hugað að skepnum úti á engjum. Oftast var fólk með eitthvað lítið og létt eins og sokka og vettlinga á prjónunum sem var eflaust betra því eftir því sem peysan stækkaði fór hún að síga svolítið í,“ segir Hélène sem gekk með hnykilinn í handarkrikanum alla leiðina en það var einnig venjan á árum áður. Hún segir prjónaskapinn engu að síður hafa gengið vel og hjálpað henni að halda jöfnu tempói í ferðinni. „Sem leiðsögumaður þarf maður að fara hægar yfir en á eigin vegum og þetta hægði aðeins á mér. Þá var stoppað með reglulegu millibili og prjónað. Við tylltum okkur meðal annars á nýja fjallið Magna en stöldruðum ekki lengi við enda hefur það ekki ennþá náð að kólna og okkur varð fljótt heitt á rassinum.“ Fyrirhugað er að uppskriftin að peysunni, sem hefur fengið nafnið Fimmvörðuháls, birtist í bandarísku peysubókinni Sweaters From Around the World á næsta ári. Um er að ræða aðsniðna peysu sem minnir á gömlu íslensku peysufötin en Hélène er þekkt fyrir óþrjótandi áhuga á íslenskri prjónahefð. Hann ásamt áralangri reynslu hennar sem fjallaleiðsögumaður á Íslandi er hvatinn að prjónaferðunum sem hún fer í samstarfi við Íslenska fjallaleiðsögumenn. „Ferðirnar ganga út á að kynnast landinu og ferðast um það með prjón að leiðarljósi,“ segir Hélène. „Þær bjóða upp á blöndu af stórfenglegri náttúru, íslenskri menningu, prjónasögu og prjónanámskeiðum.“ Þátttakendur koma frá Evrópu, Norður-Ameríku og Skandinavíu en ferðirnar eru einnig opnar Íslendingum. Fram undan er haustprjónaferð í nágrenni Selfoss í nóvember og vetrarprjónaferð i Landmannalaugar í mars en þá verður prjóni og gönguskíðaiðkun fléttað saman. Nánari upplýsingar er að finna á www.prjonakerling.is vera@frettabladid.is
Mest lesið „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Lífið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Fólk undraðist að þær héldu barni frá skjám fyrstu tvö árin Lífið Guðmundur og Erna eru gift Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um Lífið Oddvitaáskorunin: Ófeiminn að taka undir þegar Frelsið tekur að óma Lífið Fleiri fréttir Skoðunarferð um nýja Landspítalann á HönnunarMars Oddvitaáskorunin: Ófeiminn að taka undir þegar Frelsið tekur að óma Fólk undraðist að þær héldu barni frá skjám fyrstu tvö árin „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjá meira