Reynslubolti ráðinn dagskrárstjóri 24. júlí 2011 09:00 Hilmar Björnsson er nýr dagskrárstjóri Skjá Eins og er með fullt af hugmyndum. Mynd/Anton „
Þetta var einfaldlega áskorun sem ég gat ekki skorast undan,“ segir Hilmar Björnsson, nýráðinn dagskrárstjóri sjónvarpstöðvarinnar Skjár einn. Eins og Fréttablaðið greindi frá sóttu margir um starfið en Kristjana Thors Brynjólfsdóttir hefur gegnt starfinu undanfarin ár. Hilmar hefur verið sjónvarpsstjóri Skjás Golfs undanfarna mánuði en hann hefur mikla reynslu úr fjölmiðlaheiminum. Til dæmis var hann sjónvarpsstjóri hjá Sýn og seinna Stöð 2 Sport og hann sá um útsendingar Ríkissjónvarpsins frá HM í knattspyrnu í fyrrasumar. „Það er fyndið að segja frá því að á síðasta ári var ég að vinna hjá öllum sjónvarpsstöðvum landsins á rúmu ári,“ segir Hilmar, sem tekur formlega við nýja starfinu á mánudaginn. Hilmar boðar ekki miklar breytingar en leggur áherslu á að halda í þá 25 þúsund áskrifendur sem stöðin hefur nú þegar. „Ég er með fullt af hugmyndum en á eftir að skoða hverjar þeirra ég get framkvæmt. Það er þekkt dæmi að góð íslensk dagskrárgerð selur áskriftir og ætla ég því að vera með allar klær úti í þeim efnum,“ segir hann og bætir við að Skjár Einn ætli sér að virða sinn áhorfendahóp, sem flestir eru að leitast eftir ódýrri afþreyingu. „Við erum að sjá gríðarlegan uppgang í Skjá Frelsi, þar sem fólk getur horft á þættina þegar þeim hentar. Þá eru áhorfendur í rauninni sínir eigin dagskrárstjórar.“ - áp
Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Lífið samstarf Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Tónlist „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ Lífið Fleiri fréttir Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Sjá meira