Sverrir keppir hjá Sameinuðu þjóðunum 6. júní 2011 19:00 Auglýsingin sem Sverrir Björnsson sendi inn í keppnina en hann sat sjálfur fyrir á myndinni. „
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á auglýsingum sem bæta samfélagið og hef gert nokkrar slíkar áður fyrir Stígamót og Auga," segir Sverrir Björnsson, hönnunarstjóri Hvíta Hússins, en hann er með framlag í auglýsingasamkeppni á vegum Sameinuðu þjóðanna. Þemað er ofbeldi gegn konum eða No to violence against women og mega allir Evrópubúar senda inn framlag. Að lokum sker dómnefnd úr um hvaða auglýsing ber sigur úr býtum en sú auglýsing verður birt út um allan heim. „Það eru fleiri Íslendingar í keppninni þetta árið en það er frábært að sjá hversu margir taka þátt. Hugmyndaflugið er óendanlegt og það kemur glöggt fram þegar margir hönnuðir fá að glíma við sama verkefnið," segir Sverrir en Íslendingar hafa átt góðu gengi að fagna í auglýsingasamkeppnum á vegum Sameinuðu þjóðanna og í fyrra sigraði Stefán Einarsson með auglýsingu þar sem hann hvatti leiðtoga heimsins að draga úr fátækt. Hann situr nú í dómnefndinni og þarf að velja sigurvegara úr mörg hundruð þátttakendum. „Sigur í svona keppni getur opnað ýmsar dyr og fær fyrsta sætið peningaverðlaun upp á 5.000 evrur. Stefán fékk að hitta Antonio Banderas í fyrra á verðlaunaafhendingunni og það væri nú ekki amalegt," segir Sverrir. Áhugasamir geta skoðað allar auglýsingarnar sem búið er að senda inn í keppnina og valið þær bestu. Hægt er að skoða keppnina nánar á síðunni create4theun.eu. -áp
Mest lesið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið KK átti salinn - en tónlistin varð útundan Gagnrýni Innistæðulaus stjörnudýrkun: Plácido Domingo hefði betur setið heima Gagnrýni Fleiri fréttir „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Er ástin blind? Eru konur ástsjúkari en karlar? Kom gríðarlega stórum hlut í gegnum kleinuhring án þess að skemma hann Sjá meira