Hrekkjusvínin snúa aftur í söngleik í Tjarnarbíói 31. maí 2011 20:00 María Reyndal leikstýrir söngleik byggðum á plötu Hrekkjusvínanna, Lög unga fólksins. Tinna Hrafnsdóttir og Sveinn Geirsson framleiða og leika, auk þess sem Valgeir Guðjónsson kemur við sögu. Mynd/Vilhelm „
Textarnir úr lögunum eiga svo vel við í dag," segir leikstjórinn María Reyndal. Söngleikurinn Hrekkjusvín verður frumsýndur í Tjarnarbíói í október. Hann verður byggður á plötunni vinsælu Lög unga fólksins með Hrekkjusvínunum sem kom út 1977. Tinna Hrafnsdóttir og Sveinn Geirsson framleiða verkið og leika í því og María Reyndal leikstýrir.Tinna Hrafnsdóttir„Þetta er ofboðslega skemmtileg plata. Þessi söngleikur verður fyrir alla fjölskylduna, þar á meðal fullorðna aðdáendur Hrekkjusvínanna," segir María. Setningar á borð við „hvert mannsbarn skuldar heila milljón" úr laginu „Krómkallar" og „helstu ráðamenn sofa með lygaramerki á tánum" úr laginu „Lygaramerki á tánum" eiga vel við í dag að mati Maríu. „Sagan endurtekur sig aftur og aftur, það er það sorglega við þetta allt saman. Kannski lærum við eitthvað í þetta sinn en við vitum það ekki." María hefur áður leikstýrt söngleiknum Abbababb sem vann Grímuverðlaunin sem barnasýning ársins. Síðast leikstýrði hún gamanleikritinu Finnska hestinum í Þjóðleikhúsinu.Valgeir GuðjónssonHrekkjusvínin samanstóðu að miklu leyti af meðlimum úr Spilverki þjóðanna og Þokkabót. Tilurð hljómsveitarinnar var sú að hópur sem kallaði sig Gagn og gaman ákvað að gefa út plötur sem væru ekki venjulegar poppplötur. Valgeir Guðjónsson samdi og flutti öll lögin á Lögum unga fólksins ásamt Leifi Haukssyni, útvarpsmanni, og fleiri valinkunnu fólki. Meðal þeirra sem komu fram á plötunni voru Eggert Þorleifsson, Diddú, Egill Ólafsson og Magnús Einarsson, en skáldið Pétur Gunnarsson samdi textana. Valgeir Guðjónssson tekur þátt í uppfærslunni í Tjarnarbíói. María vildi ekki tjá sig um hvort fleiri Hrekkjusvín komi við sögu en um þessar mundir er verið að leggja lokahönd á handritið, auk þess sem leikaraprufur hafa staðið yfir. freyr@frettabladid.is
Tónlist Mest lesið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Sjá meira