Hugmyndin fæddist í orlofi 18. maí 2011 21:00 Þóra Eggertsdóttir, til vinstri, og Guðrún Heimisdóttir ásamt dætrum sínum, Alexöndru og Huldu. Mynd/Tomasz Þór Veruson
Þóra Eggertsdóttir og Guðrún Heimisdóttir standa á bak við hönnunarfyrirtækið Puzzled by Iceland. Þær hafa þróað og framleitt púsluspil sem eru sérstaklega hugsuð sem minjagripir. Samstarf vinkvennanna, sem hafa þekkst í áratug, hófst á meðan þær voru báðar í fæðingarorlofi. Einn dag er þær sátu á kaffihúsi veltu þær fyrir sér hvað tæki við að orlofinu loknu og ákváðu að stofna fyrirtæki saman. „Við ákváðum að skapa okkar eigið starf og stofna fyrirtæki; það eina sem vantaði upp á var hvers konar fyrirtæki við ættum að stofna,“ útskýrir Guðrún glaðlega. Þær stöllur skrifuðu niður ýmsar ólíkar hugmyndir að fyrirtækjum og ákváðu að lokum að vinna áfram með hugmyndina að púslunum. Þær fengu til liðs við sig nokkra áhugaljósmyndara sem þær fundu á vefsíðunni Flickr.com og að lokum höfðu þær uppi á framleiðanda í Kína. Fallegar myndir úr íslenskri náttúru prýða púsluspilin, þar á meðal ljósmynd af Öxarárfossi, Hvítserki, litlu lambi og fallegu hrossi, svo fátt eitt sé nefnt. Hverju púsli fylgir einnig skemmtilegur fróðleikur um myndefnið. „Viðtökurnar hafa verið ótrúlega góðar en þar sem fyrstu púslin komu út í nóvember höfum við enn ekki upplifað ferðamannasumar á Íslandi. Við erum mjög spenntar fyrir sumrinu og höfum beðið lengi eftir því.“ Þær Þóra og Guðrún hlutu annað sætið í Gullegginu hjá Innovit og ætla að nota þann styrk til að fara út með vörumerkið, sem þær hafa fengið skrásett. „Vörumerkið heitir Puzzled by og okkur langar að þróa það áfram. Kannski verða eftir nokkur ár einnig komin púsluspil sem heita þá Puzzled by Norway eða Germany,“ útskýrir Guðrún. Puzzled by Iceland fæst meðal annars í Minju, Eymundsson og Leifsstöð. - sm
Mest lesið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Fleiri fréttir Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Sjá meira