Getur hugsað sér sjónvarpsferil eftir fótboltann 5. maí 2011 11:00 Eiður Smári hefur sýnt flotta takta sem þulur hjá Sky og fór á kostum í beinni útsendingu fyrir leik Barcelona og Real Madrid í meistaradeild Evrópu á þriðjudagskvöldið.Fréttablaðið/Anton Brink „
Þetta hefur þróast útí það að Sky hefur sett sig í samband við mig og athugað hvort ég væri laus með tilliti til æfinga-og leikjaplans,“ segir Eiður Smári Guðjohnsen, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Fullham, í samtali við Fréttablaðið. Eiður fékk lofsamlega dóma á samskiptasíðunni Twitter eftir frammistöðu sína sem gestur í myndveri Sky Sports fyrir og eftir leik Barcelona og Real Madrid í meistaradeild Evrópu á þriðjudagskvöld. Eiður þótt ákaflega hnyttinn í tilsvörum, varpaði fram skemmtilegum staðreyndum um leikmenn Barcelona og þá hrósuðu enskir twitterar honum í hástert fyrir enskukunnáttuna en Eiður lék auðvitað bæði undir stjórn Pep Guardiola og Jose Mourinho hjá Barcelona og Chelsea. Eiður getur ekki neitað því að sjónvarpsstarfið kitli eilítið þegar fótboltaferlinum ljúki, hann hafi gaman af þessu. „Þetta byrjaði aðeins í fyrra, þegar ég var hjá Tottenham, þá báðu þeir mig um að koma þegar Barcelona var að spila. Ég ákvað bara að slá til, prófa og sjá eitthvað nýtt því þetta var ekkert sem ég var búinn að spá í að gera. Menn voru bara almennt ánægðir með mig eftir þá frammistöðu og hafa hringt af og til og athugað hvort ég væri laus.“ Fyrrum landsliðsfyrirliði Íslands tekur þó skýrt fram að takkaskórnir góðu eigi eftir að vera á grasinu í dágóðan tíma enn, ferillinn sé síður en svo komin á endastöð. „Ég verð hins vegar ekki í fótbolta endalaust og ef það er eitthvað sem ég kann og veit eitthvað um þá er það fótbolti.“ Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa aðrar sjónvarpsstöðvar í Bretlandi sóst eftir kröftum Eiðs og bandarískar líka. Íþróttastöð Fox var þannig með stutt innslag í hálfleik þar sem Eiður var í viðtali þannig að hróður leikmannsins fyrir framan tökuvélarnar berst víða. Það virðist því aðeins vera að stytta upp hjá Eið eftir erfitt tímabil því hann hefur einnig spilað síðustu þrjá leiki Fullham í úrvalsdeildinni eftir að verið fastur á bekknum hjá Stoke fyrir áramót. „Þetta hefur verið mjög erfitt, algjört leiðindatímabil, ef ég á að vera alveg hreinskilin. Það er erfitt að sýna sitt besta þegar maður fær ekkert að spila en nú er maður farinn að brosa á ný,“ segir Eiður. Hann tekur þó engu sem gefnu og býr á hóteli þar til hans mál eru komin á hreint. -freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Stjörnulífið: Skúli og Gríma orðin hjón Lífið „Ég hef verið mikill kvíðasjúklingur alveg síðan ég var barn“ Lífið „Maður getur þakkað íslenskum bókmenntum fyrir H.C. Andersen“ Lífið Eldri menn hlógu þegar hún sótti um vinnu Lífið Maðurinn sem Pink Floyd kveikti í er látinn Lífið Sannfærð um að hún myndi aldrei geta átt gott líf Lífið Ljósbrot tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Menning Terence Stamp látinn Bíó og sjónvarp Annie Mist á von á þriðja barninu Lífið Geggjaðar gellur í gæsun Grímu Thorarensen Lífið Fleiri fréttir Annie Mist á von á þriðja barninu Stjörnulífið: Skúli og Gríma orðin hjón „Ég hef verið mikill kvíðasjúklingur alveg síðan ég var barn“ Maðurinn sem Pink Floyd kveikti í er látinn „Maður getur þakkað íslenskum bókmenntum fyrir H.C. Andersen“ Krakkatía vikunnar: Strumparnir, borgarstjórar og tónlist Eldri menn hlógu þegar hún sótti um vinnu Sannfærð um að hún myndi aldrei geta átt gott líf Fréttatía vikunnar: Þýskaland, hetja og kaffihús Forsetahjónin létu sig ekki vanta Uppskrift að hinu fullkomna vinkonukvöldi Svaraði eiginmanninum fyrrverandi: „Eldandi, þrífandi og alandi upp börn“ Þorsteinn og Rós orðin hjón Fagna aldarfjórðungsafmæli Ylstrandarinnar á morgun Björn Bragi, Jón Jónsson og Anna Svava í handritsteymi Áramótaskaupsins Á batavegi fjórum mánuðum eftir slysið Ársgömul færsla á Reddit kveikjan að samstarfinu Bieber fékk sér smók í Skagafirði Örn Eldjárn kaupir hús Jóns Ólafssonar Cruise afþakkaði boð Trump Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ „Það var aldrei uppgjöf í hans huga, alltaf jákvæðni“ Tíramísú sem morgunmatur fyrir alla fjölskylduna Innsýn í molnandi hjónaband: „Persónuleikinn þinn var ekki svona fyrir nokkrum árum“ „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Heillandi arkitektúr í Garðabæ Valdi hættur að spila í neðri deildunum Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Hall og Oates ná sáttum Embla Wigum og Lindsey Lohan glæsilegar á rauða dreglinum Sjá meira