Lífið

Hvítabjörninn hvetur Jón til dáða

Ísbjörnin á Hornströndum sem steig á land í gærmorgun er ekki útvaldi hvítabjörn Besta flokksins enda var hann felldur í Hornvík.
Ísbjörnin á Hornströndum sem steig á land í gærmorgun er ekki útvaldi hvítabjörn Besta flokksins enda var hann felldur í Hornvík.
„Þetta hvetur okkur til dáða, að drífa í því að koma þessari aðstöðu upp. Við höfum verið að undirbúa alþjóðlega söfnunarsíðu sem er unnin af meðlimum Besta flokksins í sjálfboðavinnu, án nokkurra fjárframlaga og algerlega óháð borginni. Og þar hyggjumst safna fé fyrir svona aðstöðu og þekkingu til að fanga og hlúa að svona dýrum," segir Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík.

Hvítabjörn gekk á land á Hornstrandir í gærmorgun en dýrið var fellt í Hornvík síðla dags. Eins og margoft hefur komið fram í fjölmiðlum var það eitt af kosningaloforðum Besta flokksins fyrir síðustu sveitastjórnarkosningar að hafa hvítabjörn í Húsdýragarðinum.

Jón sagðist í samtali við Fréttablaðið vonast til þess að umhverfisráðuneytið væri undirbúið undir heimsóknina á annan hátt en að drepa dýrið. Honum varð hins vegar ekki að ósk sinni. „Á Svalbarða, þar sem hvítabirnir eru algeng sjón, forðast menn að drepa hann heldur reyna frekar að hrekja hann á brott."

Jón bendir á að hvítabjörnin sé talin til íslenskra spendýra og því sé það vel þess virði að efla almenna meðvitund um dýrið og stöðu hans í dýraríkinu. „Og þau umhverfisáhrif sem ógna tilveru hans; breyttu veðurfari og mengun-semsagt mennirnir með okkar daglega vafstri," útskýrir borgarstjóri sem hefur augljóslega mikið dálæti á ísbjörnum.

„Þetta er eitt harðgerðasta og stórfenglegasta dýr jarðar og það væri okkur til mikils sóma ef við værum með eitthvað gott kerfi sem tæki fagmannlega á þessu dýrum. Enda eru margir sem telja að með vaxandi ágangi á heimkynni þeirra muni þessar heimsóknir aukast."-fgg

Nánari upplýsingar er að finna á síðunni The Reykjavík Polar Bear Project.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.